Iðnneminn - 01.04.1953, Side 7

Iðnneminn - 01.04.1953, Side 7
Er þetta réttlæti? Eins og allir sem iðnnám stunda! Þá þurfti sá iðnnemi sem hér um ræðir einn- ig að stunda iðnskólann. Nú stóð þannig á, að umræddur nemi átti í hitteð fyrra eftir eina námsgrein í skólanum, var það seinnihluti af iðnteikn- ingu. Nemandinn hafði veturinn áður átt tal við skólastjóra, og spurði hann þá hvort hann mætti ekki Ijúka iðnteikningu, þar sem einungis þrjár myndir eru teiknaðar yfir veturinn, og hægur vandi að ljúka við sex myndir á sama tíma. Oskaði hann eftir þessu af þvi að náminu var þá jafnframt lokið í skólanum þennan sama vetur. Tjáði skólastjóri nemanum að hann fengi ekki að taka iðnteikninguna á skemmri tíma en tveim vetrum. Þá var ekki annað en taka þessu. Næsta vetur býst neminn svo til að ljúka iðnteikningunni. Þá er honum, svo og þeim sem sama nám stunda, tilkynnt að þeir fengju kennslu útaf fyrir sig í þeirra faggrein og þyrftu þess vegna ekki að sækja eðlisfræðitímana í skólanum. Þetta var alveg prýðilegt. Þeir sóttu tíma heim til kennarans og allt gekk að óskum, en viti menn, einn dag er þeim tilkynnt að kennslunni verði hætt. Astæðan var sögð sú að þeir mættu svo illa. Það skal viðurkennt að ekki voru allt- af allir mættir, en kennslan var jafn nauð- synleg fyrir það fyrir þá sem mættu. Skólagjald þennan vetur var kr. 500.00 og bar nemanum að borga það sjálfum samkvæmt samkomulagi við meistarann. Spurði neminn skólastjóra að því í byrjun skólaársins hvort hann þyrfti að borga fullt gjald fyrir þessar tvær námsgreinar sem eftir skamman tíma var svo aðeins ein. Sagði hann svo vera. Þess skal getið að nokkrmu dögum fyrir prófin var þessum nemum tilkynnt að þeir ættu að taka próf í eðlisfræðinni, sem þeim var sagt að þeir þyrftu ekki að mæta í. Bað neminn forstjóra fyrirtækis þess, sem hann vinnur hjá að tala nánar við skóla- stjórann um þetta, er hann kæmi að inn- heimta gjaldið. Gerði hann það, en fékk sömu svör og neminn, að hann yrði að greiða fullt gjald. Lá málið þar með kyrrt því enginn fær staðist yfirvaldið. Samtíða ummræddum nema í skóla voru tveir nemar úr öðrum landshluta og fóru þeir fram á að fá að taka tvö seinni náms- árin á einum vetri og var þeim veitt það, en ef sú sögn er rétt, aðeins gegn því að greiða tvöfallt gjald og sækja nokkra auka- tíma. Þetta var hægt að veita þó skólastjórinn gæti ekki leyft einum nemanda að teikna sex myndir. Kannske hann hefði getað fengið að Ijúka við teikninguna gegn því að greiða tvöfalt gjald? Hver veit? En þennan vetur þurfti netninn að greiða 500.00 kr. fyrir iðnteikningu sem var einu sinni í viku. Er þetta réttlæti? GarSar Júlíusson. Sendibréf ti! pabba Sæll og blessaður pabbi ntinn, og þakka þér fyrir síðast. Nú er ég búinn að vera í tvö ár að læra og fæ ég að 'vinna á verkstæði ef rigning er eða rok, en áður var ég látinn rukka, ef ekki var hægt að vinna úti. Svenni frændi er búinn að læra og fór í, sveinsstykkið um daginn, og var látinn smíða hurð, en það hefur hann ekki fengið að gera fyrr, því Gísli bróðir meistarans smíðar allt á verkstæðinu. Ég stunda skólann á kvöldin eftir vinnu, og ef maður á ekki að vera sér til athlægis í skólanum þá verður maður að læra á nóttinni, því að um annan tíma er ekki að ræða. Það sagði mér sannorður maðui að skól- inn, sko skólann hann ætti maður bara að taka rétt. Ennfremur sagði hann mér að það væri alveg upplagt að borga tvöfalt skólagjald á þriðja vetri, því þá væri þetta sko ekki neitt, eða rétt svo sem. Hún Sigríður sagði mér að fæðið myndi bækka upp í kr. 980.00 fyrir næsta mánuð, en hún sagðist ekki ætla að hækka leiguna fyrir herbergiskitruna að svo stöddu, en leigan er kr. 230.00 á mánuði núna. Nú er kaupið mitt rúmar 9 kr. fyrir hverjar sextíu mínútur. Það sagði mér einn skólabróðir minn, að fyrir nokkrum árum hefði einn maður feng- ið að klára skólann á tveim vetrum og hafði mjög svo litla menntun fyrir. Ég ætla að hætta að vera í-iðnnemafé- Iaginu pabbi, því að meistarinn minn sagði mér, að það væru allt kommúnistar í þess- um iðnnemafélögum og meira að segja, að hann Siggi Jóns, sem alltaf hlustar á hann Eystein, en aldrei á kommana, er nú sagð- ur kommi síðan hann gekk í þetta iðn- Sumarmorgun á Heimaey Yndislega eyjan mín, ó, hve þú ert morgunfögur! Úðaslæðan óðum dvín, eins og spegill hafið skín, yfir blessuð björgin þín breiðir sólin geislakögur. Yndislega eyjan mín, ó, hve þú ert morgunfögur! Sólu roðið sumarský svífur yfir Helgafelli. Fuglar byggja hreiður hlý. Himindöggin fersk og ný glitrar blíðum gei'slum í; glaðleg anga blóm á velli. Sólu roðið sumarský svífur yfir Helgafelli. Yndislega eyjan mín, ó, hve þú ert morgunfögur! Líti ég til lands, mér skín ljómafögur jöklasýn; sveipar glóbjart geislalín grund og dranga, sker og ögur. Yndislega eyjan mín, ó, hve þú ert morgunfögur! Sigurbjörn Sveinsson. Þetta fallega kvæði er orkt af Sigurbirni Sveinssyni skáldi i Vestmannaeyjum, sem nú er látinn. Kvæði þetta nota Vestmanna- eyingar við hin ýmsu tæikfæri, þegar þeir koma saman, hér í Eyjum eða annars stað- ar, og er þá jafnan notað sem þjóðsöngur Eyjanna. nemafélag og unir hann því mjög illa sem eðlilegt er. Og finnst mér það eðlilegt, og ert þú ekki sammála mér pabbi minn. Pabbi, ég er að hugsa um að hætta að vera í þessu iðnnemafélagi, en þú getur sagt mömmu að ég fari stundum í K.F.U.M. Jæja, það er bezt að hætta þessu rissi og þú skilar heilsun frá mér til allra krakk- anna og mömmu og Siggu Stínu á Efra- Núpi. Og vertu nú blessaður og sæll elsku pabbi minn. Þinn sonur, Tobbi. P.s. Pabbi viltu ekki senda mér gamla bedd- ann minn, því að dívaninn minn er dottinn í sundur. Sami Tobbi. I Ð N N E M 9 N N 7

x

Iðnneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.