Iðnneminn - 01.04.1953, Blaðsíða 10
GUÐJÓN HEIÐAR JÓNSSON:
Friðrikshafnarför iðnnema
Á síðastliðnu sumri lögðum við,
dálítill hópur iðnnema, upp í ferða-
lag til Danmerkur. Ætluðum við
að taka þar þátt í norrænu æsku-
lýðsmóti, sem haldið var á vegum
Sambands lýðræðissinnaðrar æsku
í Danmörku. Það er aðili að Al-
þjóðasambandi lýðræðissinnaðrar
æsku og eins og kunnugt er, ]>á
er Iðnnemasambandið það einnig.
I hvaða tilgangi var þessi för
hafin og farin? Svarið fékk ég úr
hugarvitund minni. Jú, þið farið
til að sjá ykkur um, eftir því, sem
kostur er, en þið farið lika og það
miklu fremur til að vera þátttak-
endur í samkomu, sem stofnað er
til í nafni friðarins. I nafni mál-
efnis, sem kemur ekki þér og þín-
um við, heldur og ölhi mannkyn-
inu. Okkur ætti að vera það fylli-
lega ljóst, hvílíkar ægiplágur styrj-
aldir og afleiðingar þeirra eru. Þess
vegna ættum við að finna skyldu
okkar í að styðja og styrkja þá
menn og þau félagssamtök, sem
vinna að hugsjón friðarins — jafn-
rétti og bræðralagi meðal allra
manna.
Dagskrá móts þessa, sem haldið
var í sumar í Friðrikshöfn, hefur
}>egar verið rakin hér í blaðinu og
þarf ekki frekari skýringa við. Á
þessu móti lýðræðissinnaðrar æsku
voru flestir þátttakendur frá norð-
urlöndunum; þó voru þarna mætt-
ir fjölmargir fulltrúar annarra
þjóða.
Þar sem málakunnátta margra
okkar mun hafa verið takmörkuð,
var nokkur ástæða til að efast um
fullkominn árangur af félagslegri
og persónulegri kynningu við þátt-
takendur mótsins, en þeirri grun-
semd var gert lágt undir höfði,
vegna þeirrar framúrskarandi
greiðvikni og hjálpfýsi, er við urð-
um aðnjótandi í einu og öllu. Enda
eignuðumst við þarna marga á-
gæta vini, sem reyndust okkur ó-
metanlegir. Kom leiðsögn þeirra og
kunnátta sér vel fyrir okkur, ekki
sízt í Kaupmannahöfn, en þang-
að komum við fyrir mótið og einn-
ig eftir slit þess.
I Kaupmannahöfn gafst okkur
kostur á að skoða hinar reisulegu
skipa- og vélsmiðjur B & W, en
tímans vegna gátum við ekki dval-
ið þar svo léngi sem við óskuðum,
en til mikils hagræðis var það, að
íslenzkur starfsmaður fyrirtækis-
ins leiðbeindi okkur. Héldum fyrst
í safn, var þar meðal annars margt
af fyrstu smíðisgripum fyrirtækis-
ins, s. s. hreyflar, skilvindur o. fl.
Þar gat að líta líkön margra skipa,
meðal annars af Ægi. Goðafossi
o. fk, en þessi skip hefur B & W
smíðað fyrir okkur Islendinga eins
og kunnugt er.
Fróðlegt var að skoða sundur-
skorin vélalíkön og geta fvlgst
með gangi vélarinnar, aðcins ýta á
rofa og gekk vélin þá 3 mín. eða
þar sem næst. Ekki höfðu þó all-
ir gripir safnsins verið ætlaðir til
friðsamlegra afnota á sínum tíma,
því þarna sást hríðskotabyssa.
Hafði hún og margar aðrar verið
smíðaðar fyrir dönsku frelsishreyf-
inguna á stríðsárunum. Var sú
vinna aðallega unnin um nætur.
At' safninu héldum við til renni-
verkstæðanna. Sýndust mér bekk-
irnir margir gamlir, en gerðu sitt
gagn engu að síður. I einum af
hinum stærri var unnið við sveif-
arás og var okkur tjáð, að hann
mundi vega rúmlega 27 tonn, svo
barnameðfæri verður hann vart
kallaður. Ekki allfjarri fór fram
prufukeyrsla véla og var þar ein,
sem fara á í eitt okkar nýju skipa.
Að síðustu var numið staðar í
rafstöð fyrirtækisins, höfðu þeir
smíðað allar vélar, sem þar voru,
svo hún var að mestu eða öllu leyti
al-dönsk.
Tími sá, er við eyddum í að
skoða stærstu vélsmiðju norður-
landa var á þrotum. Hann var því
miður stuttur, en engu að síður
fróðlegur og skemmtilegur. Fjöldi
járniðnaðarmanna eru skiljanlega
þarna við nám, en við höfðum
engan tíma til að tala við þá um
kjör þeirra né annað. En ef ein-
hvern fýsir að kynnast því, mun
skrifstofa I.N.S.I. veita þar upp-
lýsingar eftir því sem kostur er á.
Ákveðið hefur verið, að næsta
alþjóðamót æskunnar verði í Rú-
meníu og nú á komanda sumri.
Gaman væri ef íslenzkir iðnncmar
gætu átt þátttakendur þar. Kostn-
aði mun verða stillt í hóf, eftir því
sem mögulegt er og upplýsingar
um mót þetta munu fást hjá Iðn-
nemasambandi Islands.
(------------------------I
IÐNNEMAR
ATHUGIÐ
Heimilisfang Iðnnemasam-
bands íslands
er eftirleiðis:
IÐNNEMASAMBAND
ÍSLANDS
Óðinsgötu 17, Reykjavík.
10
IÐ N N E M I N N