Ljósberinn - 14.01.1922, Qupperneq 7
LJOSBEEINN
7
„Má eg nú treysta >ví?“ spurði bóksali, og horfði
hvast á drenginn.
„Já, hann gaf mér þá, af því að eg vísaði hon-
um á veginn til himins; eg skal líka vísa yður á
þann veg, ef þér viljið láta mig hafa 50 aura fyr-
ir það“. Frh.
----o----
Flóttinn tiJ Egyptalands.
Jesús var á flótta. Grimmur konungur ætlaði að
láta myrða hann. þau Jósef og móðir Jesú flýja
með hann í fjarlægt land og eiga að vera þar, þang-
að til Guð segi þeim að fara heim aftur. þar áttu
þau að búa innan um alókunnugt fólk; þau vissu
ekki hvað lengi. En
þeim var ljúft að fara,
því að engill Guðs kom
með skilaboðin til
þeirra. þau elskuðu
Guð bæði og voru því
samhuga um að hlýða
trúlega hverri orðsend-
ingu frá honum. Bæði
voru þau líka fullviss
um það, að ef þau væru
hlýðin og trú, þá væri
Guð alt af með þeim,
hvert sem þau færu og hvar sem þau væru, enda
höfðu þau frá barnæsku kunnað og fylgt þessu