Ljósberinn - 26.10.1929, Side 8
LJÓSB ERINN
316
í ljósaskiftunum.
Babbi er farinn burtu
til baíja langt í frá,
en mamma situr inni ein
ineð ungana smá.
Börnin biðja um sögu,
jiau tiiðja um kvæði og söng,
]>ví þeiin er raun að róa í Jiögn
um rökkurkvöldin löng.
Glampi ef lítill gægist
um gluggann frostna inn.
Pau krjúpa á stól og kofforti
og kalla á babba sinn.
Mamma segir sögu
og syngur Ijóðabrot,
sem breytir kofakumbaldinu
í konunglegt slot.
Bráðla kemur babbi
í baðstofuna inn
og kveykir ljós á lampa fyrir
litl'a hópinn sinn.
Babbi sezt með blöðin
og bæta mamma fer,
en börnin klappa lof í lófa
og leika og gamna sér.
Byggja úr leggjum borgir,
úr bréfum smíða skip
og furðu margan fallegan
og fáséðan grip.
Búum sínum búa
og breyta til um nöfn,
unz krakkarnir í kotinu verða
konungsbörnum jöfn.
[Veturiun 1924] M. 11.
Felumynd.
Hvar er sonur garðyrkjans?
Um og eftir næstu helgi verður innheimtur
síðari liluti blaðgjaldsins hér í bænum (kr. 2,50).
Eru nú kaupendurnir vinsamlegast beðnir að
minnast þessa og hafa aurana við hendina, peg-
ar blaðboriftn kemur. — Minnist pess, að Ljós-
berinn er helmingi ódýrari en nokkurt annað
barnablað í landinu, þegar miðað er við stærð
og blaðafjölda. llonum ríður pví á að blað-
gjöldin komi með skilum.
PASSÍUSÁLMAR
HALLGRÍMS PÉTURSSONAR
hin nýja útgáfa, gefin út samhljóða frumhand-
ritinu.
Verð: í fallegu shirtlngsbandi (svörtu og
brúnu) aðeins 4 kr. 1 mjög snotru og sterku
imiteruðu skinnbandi (svörtu) kr. 6,50.
Sendir burðargjaldsfrítt hvert á land sem er
eftir pöntun, mcð póstkröfu.
BÓKAVERZLUNIN EMAUS
PÓSTHÓLF 304. REYKJAVIK.
Prentsm. Jóns Pelgasonar.