Ljósberinn - 15.01.1938, Blaðsíða 26

Ljósberinn - 15.01.1938, Blaðsíða 26
LJÓSBERINN Hirðirinn hlustar. Eiixu sinni var gamli doktorinn, Biide- ker, á fcrð í Rússlandi. Frá því ferða- lagi sagði hann eftirfarandi sögu: 1 einstígi nokkru á fjalli uþpi hitti doktorinn ungan mann; af fatnaði Iians þóttist hann sjá, að hann væri hjarð- rnaður, en liann var ósköp áhyggjufull- ur á svipinn. »Hví ertu hér á ferð svona seint á degiV* spurði doktorinn. »Lambið mitt litla hefir villst, og ég er að leita að því«, svaraði hjarðsveinn- inn. Peir urðu nú samferða um hríð, en mæltu varla orð frá vörum, því að hjarð- sveinninn ungi var allt af að skima í kringum sig og hlusta. Hann gat ekki gleymt litla lambinu sínu svo mikið sem eitt augnablik. I’egar minnst varði rak hann upp einkennilegt ldjóð, varpaði sér síðan niður og lagði eyrað við jörð- ina. Doktorinn liélt niðri í sér andanum og horfði á hann. IJá spratt hjarðsveinn- inn á fætur og Ijómaði af fögnuði. »Ég heyrði til lambsins«, hrópaði hann upp af miklum fögnuði og þaut af stað. Doktorinn lieyrði ekkert, en það fór ekki fram hjá hinu hljóðnæma eyra hjarðsvoinsins; hann heyrði neyðarjarm hins frávillta lambs. * * =i: Jesús, hirðirinn góði, heyrir hið lægsta neyðaróp okkar, litlu vinanna sinna; það getur verið ógn dauft, og titrandi; en hann kemur óðara og bjargar hinu frávillta barni síns himneska föður. Ttllann heyrir stormsins hörpuslátt, hann heyrir barnsins andanlrátt; hann heyrir sínum himni frá hvert hjartaslag pitt jördu a'.« (M. J.). Merkileg heimilisguðrækni. Trúuð kona sat að kveldverðarboröi með fólki sínu; tók hún þá penna og blað og lagði á borðið fyrir frainan sig, og síðan sagði hún: »Eg- ætla að segja ykkur, hvað Spurge- on sagði við okkur í prédikun sinni«. Maður hennar sat og var að lesa í dagblaðinu; leit hann þá snöggvast upp til að heyra, livað um væri að ræða; en er hann lieyrði Spurgeon nefndan, fór liann aftur að lesa í blaðinu. En kona hans sagði: »Spurgeon bað oss öll með djörfung, en þó með titrandi hjarta, að skrifa nöfnin okkar á pappírsblað og þar fyr- ir neðan orðin »frclsaður« eða »glatáð- ur«, og gera það í allri einlægni. Maður hennar greip ]iá skörunginn og tók að skara í eldinn á arninum. En á meðan skrifaði kona lians nafnið sitt cfst á blaðið: »Sara Michel frelsuð.« Að því búnu fékk hún blaðið dóttur sinni, sem hafði verð með henni i trú- boðshúsinu um kveldið. Dóttir hennar roðnaði og skrifaði nafnið sitt viknandi fyrir neðan nafn móður sinnar: »Lucy Michel frelsuð«. En það var næstum því ólæsilegt, því að stórt tár liafði fallið af auga henn- ar niður á það. Nú kom röðin að Harry, syni hennar Móðir hans var kvíðafull út af honuiri. Hann hafði óskað þess að verða Guðs barn, en vissi ekki fyrir víst, hvort hann hefði stigið það spor. Hjartað barð- ist ótt í barmi hennar, er hún fékk honum blaðið og pennann. En hann skrifaði nafnið sitt hiklaust og styrkri hendi: »Harry Michel frelsaður«. 26

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.