Ljósberinn - 01.09.1939, Page 3
19. úrg., 9. tbl.
September 1939
Jcsús og börnin
Og' menn færðu börn íil hans, til
þess að hann skyldi. snerta þau,
en lærisveinarnir ávítuðu þá. En
er Jesús sá það gramdist honum
það, og hann sagði við þá: »Leyf-
ið börnunum að koma til mín. og
bannið þeim það ekki, því aó slikra
er guðsríkið. Sa.nnlega segi ég yð-
ur: Hver, sem ekki tekur á móti
guðsríki eins og barn, mun alls
eigi inn í það koma«. Og hann tók
þau sér í fang, lagði hendur yfir
þau og blessaói þau,
Enn í dag' færa. menn börn til
Jesú. Nú eru þau færð Jesú til þess að
vera skírð. Það er hátíðleg og' heilög stund,
þegar barn er skírt. Allir menn eru fædd-
ir með syndug'u eðli. En Guðs sonur Jesús
Kristur, kom í heiminn, til þess að vér
skyldum ekki glatast í syndinni, heldur
öðlast eilíft líf í Guðs ríki sem Guðs ást-
fólgin bórn. Og til þess hefi,r Drottinn vor
og frelsari gefið oss skírnina,. Þess. vegna
hefir hann fyrirskipað skírnina og sagt:
»Allt vald er mér gefið á himrii og jörðu.
Farið því og gerið allar þjóðirnar að læri,-
sveinum með því að skíra þá til nafns Föd-
ursins og Sonarins og Hins Iieilaga Anda,
og með því að kenna þeim að halda alli
það sem ég hefi boðið yður«.
Þegar presturinn skírði þig, signdi, hann
þig og' sagði: »Meðtak þú tákn hins heilága
kross bæði á enni þitt og brjóst til vitnis-
burðar um, að þú tilheyrir hinum kross-
festa Drottni Jesú Kristi og að hugur þinn
og hjarta á að helgast fyrir J;rúna, á hann«.
Síðan fór hann með játning trúar vorrar.
Hana eiga öll börn að læra. Hún er svona:
Ég' trúi, á Guð föður, almáttugan skap-
ara himins, og jarðar.
Ég trúi á Jesúm Krist, hans einkason,
Drottin vorn, sem getinn er af Heilögum
Anda, fæddur af Maríu mey, píndur und-
ir Pontíusi Pílatusi, krossfestur, dáinn o',
grafinn, steig niður til heljar, reis, á þriðja
degi, aftur upp frá dauðum, steig- upp til
himna, situr við hægri hönd Guðs föður
almáttugs. og' mun þaðan koma að dæma
lifendur og dauða.
Ég trúi á Heilagan Anda, heilaga al-
menna kirkju, samfélag heilagra, fyrir-
gefning syndanna, upprisu holdsins og ei,-
líft líf.
Síðan skírði presturinn, þig. Hann jós
vatni þrisvar á höfuðið á þér og sagði: »Ég
skíri þig til nafns Föðursins, Sonarins og
Iiins, Heilaga Anda. Amen«.
Þá skrifaði Guð nafn þitt inn í lífsins
bók og gaf þér heilagt líf og' Heilagan Anda.
Hann endurfæddi, þig.
Svona komst þú til Jesú fyrst. En þú
mátt aldrei fara frá Jesú og aldrei hætta
Frh. á bls. 211.