Ljósberinn - 01.09.1939, Page 15

Ljósberinn - 01.09.1939, Page 15
LJÓSBERINN 207 u.r í húsagarðinum og gleymdi hinum sár- verkjandi og þreyttu limum sínum, en sökkti sér niður í umhugsunina, um hinn fyrirhugaða flótta. Hið æfintýralega og hættulega, sem, stóð í sambandi við þetta gerði málið enn eftirsóknarverðara, og skemmtilegra. 1 þessu hugarfarsástandi og fullur vonar og tilhlökkunar gekk hann fram með hlið aðalhússins. Voru þar allir gluggar ljóma,ndi af ljósadýrð, og stóðu flestir opni,r. Raddir heyrðust, út um glugg- ana á samkomusalnum. Þar var einhver að lesa upphátt og allt af verið að taka fram i fyrir honum með lófaklappi og hlátrasköllum. Lénharður beygði fyrir hornið á húsinu og gekk niður malborna hliðargötu, sem lá heim að eldhúsinu. En þar nam hann allt í einu staðar. Uppi í einum glugganum sá hann, dökka, manns- mynd og á næsta augnablikki stökk mað- ur niður á malarganginn, féll áfram, en reis skjótt á fætur. Ljósbjarmi úr eldhús- glugganum skein á andlit manns þessa, og Lénharður hrökk e.itt. skref aftur á bak, og kallaði undrandi: »Herra Benja;mín, eruð það þér? Hvað eruð þér að hafast að?« Orð þessj hrukku ósjálfrátt fram úr hon- um, En, svarið varð honum þó enn meira undrunarefni, því Benjamín hrópaðf eins og ha,nn hafði orku til: »Þjófar! þjófar!« Hinn glymjandi herlúður, sem skyndi- lega og fyrirvaralaust kallar hermennina til vopna, gat ekki haft meiri áhrif en öskrið úr Benjamín. Allar samræður og allir hlátrar duttu skyndijega í dúnalogn. Það var dauðaþögn um stund, en svo gall allt í einu við skræk og hjáróma kven- mannsrödd: »Hvað kom fyrir, Benjamín minn?« Frú Duncan kom æðandi og þaut og skrjáfaði í silkikjól hennar. Lénharður stóð hreyfingarlaus eins og þrumu lostijin,. Loks gat han,n stunið upp: »Eruð þér orðinn vit,skertur?« Benjamín svaraði með því að ráðast á Lénharð og halda hpnum og æpa síðan af öllum mætti: »Haldið honum og látið han,n ekki sleppa. Hann hefir stolið«. Lénharður reif sig af honum, og hratt honurn ómjúklega frá sér. En svo fann hann að þrifið va,r í herðar honum, og heyrði rödd friðdómarans við eyra sér: »Hvað gengur hér á? Hefi ég ekki bann- að þér að vera í áflogum við Benjamín?« Afarmikill raddakliður heyrðist aö baki herra Duncans. Allir gestirnir höfðu safn- ast þarna sa.man. Lénharður fann ilm- bylgju svífa umhverfis sig. Suimir hlógu að þessum ímynduðu áflogum þessara svein- staula, en aðrir spurðu hvar þjófurinn væri. Nú gat Benjamín loksins komist að að tala, og byrjaði hann ræðu sína ísmeygi- lega og sannfærandi: »Mér var illt, í höfðinu og gekk því út, til þess að draga að mér ferskt lpft«. »Hann lýgur«, greip Lénharður fram í. »Kyrrir«, hrópaði friðdómarinn. »Þega,r ég kom hér fram hjá, stökk Lén- harður út um gluggann þarna«, sagði Benjamín ennfremur, um leið og hann benti upp, »hann velti mér um koll«, mælti hann ennfremur, og sýndi þeim sandinn á buxnaskálmum sín,u,m, »en, ég stökk á fætur og hélt honíum föstum«. Fagnaðaróp gall við frá nokkrum hluta mannfjöldans, svo að ekkert heyrðist af því, sem Lénharður vildi segja. Honum fa,nnst að hann ætlaði að kafna af bræði, og gat hann varla komið upp nokkru orði. Friðdómarinn þagði. Hann þekkti bæði son sinn og Lénharð, og virtist, þetta harla ótrúlegt. Nathanael. Forster var sá fyrsti, er tók til máls. Hann ruddist fram, og mælti: »Þessi gluggi er á herberginu mínu. Það er þess vegna vissast að ég rannsaki það, og athugi hvort nokkru hafi verið stolið eða ei,nhverju s,pillt«. »Já, það er alveg rétt. Það verður að

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.