Ljósberinn - 01.09.1939, Side 19

Ljósberinn - 01.09.1939, Side 19
LJÓSBERINN 211 Thomas H. Kingo. (Sjá forsíðumyndiiia). Kingo er fæddur í Slangerup árið 1634. Hann er einn. hinn þekktasti danskra klerka, sem sálmaakáld. Faði,r hans var frá Skotlandi. Hann kom ungur til Dan- merkur og stundaði silkivefnað, eins og foreldrar hans höfðu gert. Móðir Kingos var dönsk. Virðist hann hafa Lært af henni að elska móðurmál sitt. Stúdent varo hann frá menntaskóla Friðriksborgar 1654. Eft- ir að hann. hafði tekið embættisipróf í guð- fræði, fjórum árum síðar, varð hann heim- iliskennari í Vedbygaard. En árið 1668 varð hann sóknarprestur í fæöingarborg si,nni. Því embætti hélt hann til 1677. Áður en Kingo varð prestur, hafði hann gefið út ljóð, sem sýndu þó ekki annað en mikla rímleikni, en í Slangerup varð hann nú að stórfenglegu skáldi. 1 hinni verald- legu ljóðagerð sinni er ha.nn þó að lang- mestu leyti barn síns tíma. En sálmar hans geyma eilíf verðmæti. Um jólaleytið 1673 kom út fyrsti hlut- inn af morgun,- og kvöldsöngvum hans, eða »Hin,n andlegi söngflokkur« eins og bókin var nefnd. Þessir fögru sálmar urðu að nokkru leyti, þess valdandi að höfundur þeirra varð bisk- up yfir Fjóni 1677. Seinna. varð Kingo einn aðalmaður í sálmabókar nefnd þeirri, sem fjallaði um bina svo nefndu Kingos sálmabók. En i henni voru 85 a,f sálmum hans. Þessi sálma- bók hefir haft ómetanlegt gildi fyrir állt safnaðarlíf í Danmörku, ekki s.ízt á dög- um skynsemistefnunnar. Sálmar Kingos sýna glæsilegt skáld, sem í örfáum, voldugum dráttum megnar að draga upp lifandi ógleymanlegar myndir. Myndir, s.em birta hinn djúpa, undirstraum trúrækninnar í barmi liins inn.ilega, Kri.sts' vinar. Gröf hanffi er í Fraugde kirkju nálægt. Odense. Sálmar hans munu flétta ófölnan- Legan dýrðarsveig um hið veglega minnis- merki, sem, þriðja konahans Lét reisa honum. Desús og börnin — frh. af bls. 195. að koma til hans. Þú átt að bidja hann oft og staðfastlega. Það er bezt að gera það á kvöldin og morgnana og oft utan þess. Guðs orð segir: »Biðjið án afláts«. Þegar þú ert orðinn læs, átt þú að eign- ast Nýja Testamenti. Það er ódýr bók, sem þú átt að lesa í daglega, af því að hún er Guðs orð. Svona átt þú að koma, ti,l Jesú dagLega alla ævi. Það eru margir, sem hafa hætt því. En þeir eiga bágt. Sá sem yfirgefur Jesúm, verður strikaður út úr lífsins bók. En ef þeir vilja koma aftur og biðja Jesúm fyr- irgefningar eins og börn, þá tekur hann glaður á móti þeim, því að hann vill að aLl- ir geti komizt inn í guðsríki. Einmitt til þess dó hann fyrir syndir vorar. Guði séu þakkir fyrir sína óumræðilegu gjöf. Orðsendingar. 1 vor sendi ég út tilkynningu til allra þeirra kaupenda LjóSiberans, sem ég ta.ldi að skulduðu fyrir ltðin ár, eitt eða fleiri. — Margir hafa svar- að, en þeir eru líka margir, sem ekki h,afa svar- að. Nú er ekki hægt, að senda blaðið lengur þann- ig I óvissu, og verður þetta því síðasta blað, sem sent verður til þeirra, sem skulda, tvö eða fleiri ár. En strax, er greiðsla kemur, verður þeim sent það, sem þá er kornið út. Laglegt j ó 1 a b 1 a ð fá alltr kaupendur, seni borgað hafa, þegar blaðið verður sent út. Styrkið Ljósbcraun með því, að standn í skil- wm mcð andvírðið! útvegið Ljósbcranum n.vjn kaupcndi.r! K. F. U. M. byrjar sunnudaginn 1. október. Iil. 10.00 Sunnudagaskólinw. — 1.30 V-D. — 1.30 Y-D. — 8.30 U-D. — 8.30 Almenn samkoma. Allir velkomnir. Tilkynnið bústaðaskifti í síma 420#

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.