Ljósberinn - 01.09.1939, Side 20
EYÐIMERKURFORM
9) Saga í niyndum eftir Iieiiryk Sienkiwicz
Stasjo reyndi nú að bjóða þeim fé, ef þeir vildu
snúa við með þau, Hann beið rólegur eftir svari
Idrys: »Þú segir, að feður ykkar muni borga okkur
mikið fé?« »Já«. »En geta alliu peningar þeirra
opnað okkur b,lið paradísar, sem blessun Mahdi-
ans opnar fyrir okkur?« Stasjo missti aila von.
Hann vissi, að þegar Múhameðstrúarmaður lítur
á slíkt með augum trúarinnar hafa peningar eng-
in áhrif á hann. Hann bað þá því um að senda
Nel til baka, en Idrys fannst öruggara að hafa
þau bæði.
Idrys svaraði.: »Ég sá hvernig þú réðist á Gebhr.
Þú ert ungt ljón; þú dey'rð ekki, en hún .. .« hann
ieit á Nel og sagði svo’ næstum bliðlega: »Henni
ætla ég að byggja hreiður á baki úlfaldans«. Síðan
gekk hann að bezta úlfaldanum og útbjó sæti, sem
Nel gæti sofið i. »Sjáðu nú«, sagði Idrys við Stasjo.
»Gamla konan á að si,tja við hlið telpunnar og gæta
hennar«. Stasjo gladdist yfir því, sem honum hafði
áunnist. Það leið að sólaruppkomu og þá höfst ferð-
in á ný. Er ræningjarnir féllu á grúfu fyrir Allab,
bað Stasjo: »1 þína ásjá og ver.nd felum vér oss,
heilaga Guðsmóðir ...«
, Stasjo sagði við Chamis: »Faðir þinn verður lál-
inn gjalda verknaðar þíns«. »Faðir minn er nú
eyðimörkinni á leið til spámannsins«. »Þá munu
þeir ná honum og h.engja hann«. Stasjo sá nú að
allt var tapað, en reyndi þó að vernda Nel fyrir
vonzku. Sudananna og sagði: »Haldið þið, að litlii
stúlkan þoli þetta. Ef hún deyr, vil ég líka deyja.
Hvað ætli.ð þið þá að færa Mahdíanum«. Idrys brá.
Er Stasjo sá það hélt hann áfram: »Hvernig mun
Mahdiinn og Smain taka á móti ykkur, ef Fatme
og börnin verða að láta lífið fyrir heimsku ykkar? ::
Þegar þa.u ætluðu að fara að stíga á bak úlföld-
unum heyrðu þa,u hu.ndgá og Arabarnir urðu ötta-
slegnir, er þeir heyrðu börnin hrópa samtimis:
»Sa.ba! Saba!« (Ljón). Þarna var Saba kominn.
Sudanarnir óttuðust að hann myndi vekja eftir-
tekt á þeim hjá ferðamönnum er þau kynnu að
mæta, og vildu þeir þess vegna skjóta hann. —
Chamis, sagðis.t ekki kunna með byssu að fara, því
honum þótti vænt um Saba. Hann sagði, að Stasjo
eínn kynni með það vopn að fara, en Idrys þorði
ekki að láta hann fá byssuna.