Ljósberinn


Ljósberinn - 15.03.1934, Page 4

Ljósberinn - 15.03.1934, Page 4
64 LJÖSBERINN Páskamorg’un. (Sunnudagaskólinn X. apríl 1934) Texti: Lúk. 24, 1. 12. Minnisvers: Ég veit að minn lausnari lifir! Job. 19, 25 a. Aldrei hafa menn lifað annan eins morgun, eins og’ þann páskadagsmorg- un, sem textinn segir okkur frá, því þá átti sér stað hinn undraverðasti at- burður, er sögur fara af. Jesús, sonur Guðs, sem seldur var í hendur syndugra, óhlutvandra manna og krossfestur, lifn- aði þá aftur og gekk út úr gröf sinni. Postularnir héldu, er þeir fyrst heyrðu um þetta kraftaverk, að það væri eitt- hvert »hégómaþvaður« og gátu ekki trú- að því. Þannig hefir farið fyrir mörgum síðar og fer enn. En ef við gefum þeim mönnum nánar gætur, þá komumst við að raun um, að þeir eru hvorki glaðir né ánægðir í raun og veru. Það er held: ur ekki von, því þeir eiga engan lifandi frelsara. Jesús er þeim dauður, ,og lítið gleðiefni fyrir þá að hugsa um hann. En við, sem trúum því-að Jesú sé upprisinn úr gröf sinni og sitji nú við hægri hönd síns himneska föður, við vitum að hann lifir og heyrir bæði og sér til okkar, og tekur þátt í lífi okkar með okkur; við gleðjumst af því að vita að hann hugsar oft til okkar og talar um okkur við föður sinn, og hann heyr- ir bænir okkar, er við lyftum hjörtum okkar og huga til Guðs. Og í dag — á páskadaginn finn- um við þá alveg sérstaklega ástæðu til þess að halda Jesú hátíð, — Honum, sem er hinn lifandi Frelsari okkar. Vér páskahátíð höldum og honum þakkir gjöldum, er sætti Guð við sekan mann og sjálfan dauðann yfirvann. Hallelúja! Hann reis úr dauðans dróma í dýrðar morgunljóma; því honum syng’ öU heimsins þjóð af hjarta dýrðleg sigurljóð. Hallelúja! S. --------------- Staðgöngumaðurinn. I skóla einum bar svo við að einn af drengjunum var bæði óhlýðinn og eftir- tektarlaus svo kennarinn skipaði honum að sitja í sneypuskotinu í hálfa klukku- stund sem refsingu fyrir það. Þegar drengurinn gaf sig fram til þess að fullnægja refsingunni, kom lítili drengur með honum og bað kennarann um leyfi til að vera í sneypuskotinu fyrir hinn drenginn. »Hvernig getur þú látið þér koma þetta til hugar, drengur minn? Hálf klukkustund er lengi að líða þegar ver- ið er að þola refsingu. Er þér það líka l.jóst að það er þér til smánar? Allir, sem koma inn í kenslustofuna halda ao þú hafir verið eitthvað ódæll strákui’. Litli snáðinn lét þessar fortölur ekk- ert á sig fá, en tók. refsinguna á sig meó mestu ánægju. Þegar tíminn var liðinn spurði kenn- arinn: »Léstu Karl telja þig á að gera þetta fyrir hann, að þola hegninguna fyrir hann?« »Nei, hr. kennari.« »Fanst þér þá að hann ætti ekki refs- ingu skilið?« »JÚ.« »Hvers vegna tókst þú þá á þig að jiola refsinguna fyrir hann?« »Af því mér þykir svo vænt um hann.« Þetta var bæði gott og hrífandi svar. öll börnin í bekknum hlýddu á sam- tal þetta með hinni mestu eftirtekt. En þá sagði kennarinn alt í einu. »Karl á nú eiginlega að fara í sneypu-

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.