Ljósberinn


Ljósberinn - 15.03.1934, Page 5

Ljósberinn - 15.03.1934, Page 5
65 LJÖSBERINN skotið fyrir þessu, því litli drengurinn hefir ekki gert neitt illt af sér!« En þá gripu allir drengirnir fram í fyrir honum og sögðu að það væri ekki réttlátt! Hvers vegna væri það ranglátt. Hefir Karl þá ekki gert neitt fyrir sér?« »Jú, en Ríkarði var refsað i hans stað og þess vegna á Karl að sleppa við hana!« »Hvað getið þið þá lært af þessum at- burði?« Sum svöruðu: »Það getur mint okkur á að Jesús leið hegninguna fyrir syndir okkar.« »Hvað eigum við þá að kalla Ríkarð?« »Staðgöngumaðurinn.« »Hvað er staðgöngumaður?« »Sá sem kemur í a.nnars stað.« »1 hvers stað kom Jesús?« »Syndarans.« »Ríkarður sagðist vilja taka á sig refs- ingu Karls af því að honum þætti svo vænt um hann. Getið þið sagt mér hvers vegna að Jesús leið og dó fyrir synd- ara?« »Það gerði Jesús af því að hann elsk aði oss.« »Getið þið bent á nokkurt ritningar- orð, sem sannar það?« »Svo elskaði Guð heiminn« o. s. frv. Jóh. 3, 16. »Hvað getum við þá lært af þessu?« »Að góður Guð getur aldrei refsað þeim syndara sem trúir á Jesúm Krist.« Sj. (þýtt). ------------ Fórnfýsi. Ottó, sonur prestsins hafði fengið snotran toglegðursbolta í afmælisgjöf. Hann var svo indæll - hann gat sung- ið. Alt til þessa, hafði Franz, sonur hringjarans átt fallegasta boltann. En nú var bolti Ottós auðvitað fremstur í röð, því að hann gat sungið. Drengirnir voru nú að leika sér hjá húsi hringjarans. Húsið lá rétt við hliðina á húskofa fátækrar ekkju. Þá varð Franz að orði: »Já, en boltinn minn þeytist hærra upp en boltinn þinn.« »Nei, minn svífur víst miklu hærra.« sagði Ottó og kastaði honum svo hátt í loft sem hann gat. En hvað vai'ð af honum? Kom hann niður í aldingarð- inn hinu megin? Nei, ekki var hann þar að finna. Það var ekki ómögulegt, að hann hefði dottið niður um reykháfinn á húsinu hans Larsens. Drengirnir hlupu nú þangað inn. Þar hittu þeir gamla konu hóstandi í eldhúsinu, af því að þar kafarauk. »Nei, börn hér er enginn bolti,« sagði gamla konan, »Það getur verið að hann hafi dottið niður í reykháfinn,« sagði Ottó. »Já, þá hefir hann víst fuðrað upp.« Veslings Ottó. Hann fór þaðan grát- andi og honum fanst sem hann mundi aldrei sjá glaðan dag framar. En um daginn, er hann sat og morgun- verði, þá gaf móðir hans honum væn- an kökubita; þá fór hann aftur að brosa, og sagði við mömmu sína: »Ég get leik- ið mér að einhverju öðru en boltanum. María Sæter, fátæk ekkja, bjó rétt við hliðina á húsi Larsens ásamt syni sínum, þeim er Hans hét. Glugginn á húskof- anum hennar stóð opinn og Hans lá þar einn inni, því að móðir hans var við vinnu úti. Þarna varð hann að liggja einn aleinn alt til kvölds og dagurinn ætlaði aldrei að líða! Hann lá og horfði út um gluggann upp í heiðbláan himininn, og var að hugsa, hve gott þeir ættu, sem væru komnir þangað. Þá heyrir hann alt í einu söng- hljóð og í þeim svifum kemur eitthvað í hendingskasti inn um gluggann liein- leiðis yfir í rúmið hans. Hans var þá

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.