Ljósberinn


Ljósberinn - 15.03.1934, Page 6

Ljósberinn - 15.03.1934, Page 6
66 LJÖSBERINN fyrst smeykur, en þegar hann fór aó athuga dálítið betur þessa kúlu, sem lá á rúminu hans, þá fór hann að brosa. Það var ekki annað en gullfallegur bolti. Þarna var hann þá loksins búinn að fá leikfang. Og hann kastaði boltanum vit- und upp og þá söng í honum. En það gaman! Þegar mamma hans kom heim, þá brá henni dálítið við, þegar hún leit á dreng- inn sinn. Hann var kafrjóður, eins og hann væri búinn að fá, hita. En þegar hann sýndi henni boltann og sagði: »Sko, mamma, hvað Guð hefir sent mér!« Þá laut hún niður að honum og kysti hann. En hún hugsaði með sér í kyrþey: »Drengirnir hafa víst meist hann, og þeir koma sjálfsagt að sækja hann.« En nú var það orðið um seinan. Að morgni ætlaði hún að segja þeim. að bolti hefði komið þjótandi inn um guiggann. Hans hafði svo boltann hjá sér um nóttina. Og þegar hann vaknaði um morgunin, þreyttist hann aldrei á að skoða hann og leika sér að honum. Daginn eftir spurði prestskonan: »Hver vill nú færa Hans litla þessa matgjöf frá mér?« Ottó var óðara fús til þess. »Berðu nú þetta varlega og heilsaðu honum frá mér og segðu hon- um, að ég komi bráðum líka.« »Ég á að bera kveðju frá mömmu.« sagði Ottó, þegar hann kom inn til Hans; en — hvað var nú að tarna? Hvað var það sem hann Hans hafði hjá sér? »Boltinn minn! boltinn minn!« hróp- aði Hans upp, og hljóp að rúminu og tók boltann og þrýsti honum fast upp að sér. »Er þetta boltinn þinn?« spurði ekkj- an náföl. »Já, frænka mín gaf mér hann í gær í afmælisgjöf.« »Jæja þá, hann kom fljúgandi inn um gluggann í gær, meðan ég var úti. Ég hefi engan tíma haft til að fara út, ann- ars hefði ég spurst fyrir hver hann ætti.« Ottó hefði nú helzt viljað hlaupa heim í sprettinum og segja upp alla söguna; en hann gat það ekki; hann var að bíða eftir því, að hann gæti haft körfuna og fötuna heim með sér aftur. Þá heyrir hann alt í einu, að kvein er rekið upp í rúminu og sagt: »Boltinn minn, boltinn minn!« Ottó varð litið þangað; hann varð forviða, þvi að hann var næstum búinn að gleyma sjúka drengnum. Þá ávítaði móðirin Hans litla og sagði: »Þetta mátt þú ekki segja! Þú átt ekki. þennan bolta; hann Ottó á hann.« En Hans grét og grét, hann gat ekki annað, og Ottó stóð þarna ráðalaus og vand- ræðalegur. Iiann kendi í brjósti um vesl- ings drenginn liggjandi í rúminu. Það væri ljótt að taka boltann frá honum. Þá var það göfugmanlegt, seni Ottó einsetti sér að gera. Hann sagði: »Gráttu ekki, Hans. Þú skalt fá að hafa bolt- ann þangað til já, þangað til seinna í dag já, þangað til í kvöld, að þú fer að sofa!,« »Já, og þá skal ég færa þér hann, þú ert vel gefinn og góður drengur,« sagði móðir Hans og leit á litla drenginn sinn kvíðafull, því hann var að gráta óg henni þótti svo sárt að hlusta á það. Ottó gekk að rúminu, fékk Hans litla boltann og sagði: »Þarna er hann.« Glaðn- aði þá þegar yfir sjúklingnum og skein í stóru augun hans gegnum tárin, þegar hann tók brosandi við boltanum. En Ottó vissi ekki almennilega, hvort hann átti heldur að hlæja eða gráta. Ilann tók hljóðlátur körfuna og föt- una og fór heim og sagði móðir sinni alla söguna. »Það var rétt gert af þér. drengurinn minn,« sag'ði prestskonan og kysti hann. »Ég er glöð af því, þegar ég sé, að þú

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.