Ljósberinn - 15.03.1934, Qupperneq 8
68
LJOSBERINN
Kvöldbæn
litlu
stúlkunnar.
Ö, Jesús kæri, kom til min,
krjúpa ég vil í bæn til ]vn,
kalla á náðarnafnið þitt
núna í kvöld, við rúmið mit.t.
Hjálpa mér æ að elska ]ng,
engiar þá góðir verncla mig.
hjálpaðu pabba á hafinu
háskanum frá á skipina.
Bít þú hjá mömmu’ og blessa’ hana,
blessaðu alla vinina,
gefðu oss öllum góða nótt,
gefðu’ að við megum hvíla rótt.
[Básúna.] Eb. Eb.
hann. Svo hefir og verið um flest mikil-
menni í Guðs ríki. Þeir hafa tekið Jes-
úm sér til fyrirmyndar. En margir af
oss líkjumst postulunum þremur, sem
Jesús bað að vaka með sér í Getsemane.
Hann fann þá sofandi eftir litla stund.
»Þér gátuð þá ekki vakað með mér eina
stund!« sagði hann. »Andinn er að sönnu
reiðubúinn, en holdið er veikt.« — Vér
þreytumst svo fljótt. Oss fellur svefninn
betur en bænin. Gleymum því ekki-, ao
Jesús var heilar nætur á bæn vor
vegna.
Ovinir Jesú höfðu skeytt skapi sínu
á honum, og nú var hann að tala um
jmð vandamál við Föður sinn. Það stóð
líka til, að hann sendi postulana tólf,
og nú varð hann að leg'g'ja þá fyrirætl-
un sína fram fyrir hann.
Hve gott það er fyrir okkur, að fara
að dæmi Jesú: Tala um vandamál okk-
ar við Guð, jsegar mótstöðumenn okkar
hata okkur og ofsækja; leita hjálpar
hans og handleiðslu með barnslegr.
trausti, þegar mikilvæg mál ber að hönd-
um.
Á hinztu stundu l)að Jesús á kross-
inum: »Faðir, fyrirgef Iaeim, joví Jseir
vita ekki hvað Joeir gera!« Þannig bað
hann fyrir óvinum. Hann víkur (í bæn-
inni) að {dví atriði, er helzt geti orðið
þeim til málsbóta: Það er vanþekkingin,
sem er orsök athafna þeirra. Faðir, þú
fyrirgefur þeim það!