Ljósberinn


Ljósberinn - 22.10.1927, Blaðsíða 1

Ljósberinn - 22.10.1927, Blaðsíða 1
Drottinn hjálpar. (Sunnudagaskólinn 16. okt. 1927). Lestu: 2. Kon. 19, 14—20; 35. Lærðu: Sálm. 46, 2. Hiskía, konungurinn í Júda-ríki, var í vanda st.addur. Sanherib Assyríukon- ungur ritar honura bréf og segir honum, að liann verði að gefa sig og þjóð sína sér á vald, ef hann vilji lífi halda. Eng- inn Guð gæti hvort sem er frelsað hann úr höndum sínum; það sé heimska, að hugsa það. Hiskía fór hina einu réttu leið með bréflð. Hann fór með það í musteri Drott- ins og rakti það sundur fyrir Drotni, gerði bæn sína og mælti: »Drottinn, Guð vor, frelsaðu oss af hendi þessa vold- uga konungs, svo að öll konungsríki jarðar megi kannast við, að þú einn ert Guð!« Og Drottinn heyrði bæn hins auðmjúka konungs og frelsaði Jerúsalem af hendi hans með dásamlegurrr hætti. Og enn er Drottinn hinn sami. Eng- inn hjálpar, nema hann. Petta vissi Lúther. Hann trúði þessum orðum: »Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum«. Og svo orti hann sálminn al- kunna út af þeim: »Vor Guö er borg á bjargi traust, hið bezta sverð og verja; hans armi studdir óttalaust vér árás þolum hverja« o. s. frv. Förum að eins og Hiskía; leggjum alt á vald og vilja Drottins, og verum svo örugg og ókvíðin. Hann hjálpar efa- laust. Guði er enginn hlutur ómáttugur. Mundu eftir pvíí l'iinu sinni stóð drenghnokki hálfbog- inn yfir einu leiðinu úti í kirkjugarðin- um; honum boguðu brennheit tárin niður vanga; seinast rétti hann sig upp, leit tárvotum augunum upp til himins og hrópaði: »Hans, ó, Hans!« Pá gekk einhver fram hjá og spurði: »Hvern ert þú að gráta, dréngurinn minn?« »Eg er að gráta hann bróður minn«, svaraði drengurinn. »Eg var ekki góður við hann, meðan hann var á lífi, en þó var hann alt af góður við inig«. Hvað mundir þú þá gera nú, ef þú gætir fengið hann aftur lifandi?« spurði maðurinn. »0, þá mundi eg aldrei hryggja hann

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.