Ljósberinn


Ljósberinn - 22.10.1927, Blaðsíða 2

Ljósberinn - 22.10.1927, Blaðsíða 2
338 L JÓSB með óvingjarnlegum orðum, heldur vera blíður og góður við hann, aldrei gera honum annað en gott«, svaraði dreng- urinn. »Vertu j)á ekki að eyða tímanum til að standa hér og syrgja bróður Jiinn; en ef jiú átt vini á lífi, j)á farðu til þeirra í Jesú nafni og auðsýndu j)eim kærleika, og mundu eftir |)ví, að jui átt líka einhvern tíma að deyja, og gleymdu ekki að biðja Guð í Jesú nafni að fyrir- gefa jtér syndirnar j)ínar«. Hann sjálfur. Eg sá einu sinni eirplötu. Á pá eir- plötu var stjórnarskrá Bandaríkjanna letruð og það af svo mikilli list, að stæði maður fast við plötuna, j)á sást ekki annað en bókstafir og setningar; en færði maður sig fjær, I)á skein andlit Georgs Washingtons út úr henni. Alveg á sama hátt er f)ví varið með heilagar ritningar; j)ar er meira en boð- orð, reglur, viðburðir og kenningar; í og með [)essu öllu sjáum vér par Jesúm Krist. Þá fyrst erum vér búnir að finna hið hulda efni ritninganna og höfum tekið á móti Jesú Kristi, honum sjálfum. í>á fyrst finnur hjarta vort frið og hvíld. Eins og bænin er lykill að Drottins náð, svo er pað Jesús einn, sem getur lokið upp fyrir honum ritningunni, svo að hjörtu vor brenni. Staka. Enn í dag eg of margt vann, er pig, Guð minn, styggja kann. Herrans Jesú blessað blóð bæti, hvað eg yfirtróð. ERINN I’að væri talsvert vandaverk, að lýsa undruninni og gleðinni, sem gagntók Rósu litlu, jregar Sina gamla rétti henni kanarífuglinn. »Mér datt í hug, að Iitla lambið hefði gaman af honum«, sagði hún og horfði brosandi á barnið, sem lék á als oddi af kæti. Pví næst sagði Sína gamla frá pví, hvernig fuglinn barst upp í hend- urnar á henni. »Og að pað skyldi svo vera fuglinn pinn, lambið mitt!« bætti hiin við frásögn sína, »pað kalla eg meira en litla hepni. En nú pekkir hún mig ekki, sem ekki er heldur von«, hélt gamla konan áfram, fægar Rósa litla var farin inn með fuglinn, til pess að láta hann strax í búrið. »Hún hefir stækkað töluvert, sýnist mér, síðan í haust, og altaf er hún jafn falleg, blessað barnið; mig hefir oft langað til að sjá hana, síðan hún barst inn í kofann minn eitt kvöld í haust sem leið, — ó-jú, hún átti nú bágt pá«. Frúiri leit snögt á Sínu gömlu og greip fram í fyrir henni: »Pað hlýtur að vera einhver misskiln- ingur«, sagði hún. »Hvernig ætti hún, telpan mín, sein — sem fer aldrei neitt að heiman, að hafa komið í kofann — af liafa heimsókt yður, — mér I)ykir pað mjög ósennilegt. Pað hefir verið annað barn á líku reki, og ef til vill svipað henni, en engan veginn hún«, Sína gamla var sezt við eldhúsborðið og ætlaði að fara að gæða sér á kaffl,

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.