Ljósberinn - 15.07.1936, Side 8

Ljósberinn - 15.07.1936, Side 8
166 LJOSBERINN anna þörfnumst við, ef eitthvað á að verða úr okkur.« Pétur litli leit framan í föður sinn, en spratt svo við, vafði handleggjunum um háls honum og sagði: »Já, pabbi, en eftir storm verður alltaf stilli-logn. Dalakúfurinn heitir framhaldssagan, sem hefst í næsta biaði. Ind- versk saga, mjög falleg. E N D I R. Löðrung’urinn. Bergur kaupmaður var orðinn gam- all, hafði Iátið af kaupsýslvstörfum og lifði nú kyrlátu. lífí í útjaðri borgar- innar. Á hverjum morgni fékk hann sér göngutúr og mætti þá iðulega ungum manni, sem æfinleg-a tók mjög kurteis- lega ofan fyrir honum. Bergur kaupmaö- ur svaraði kveðju. hans, en samt var liann þess fullviss, að hann hefði aldrei lcynnst manni þessum; hann hélt því að ungi maðurinn tæki sig' fyrir einhvern annan. Einhverju sinni var Bergur kaupmað- ur boðinn til eins af vinum sínurn; en er þangað kom, sér hann óþekta manninn kurteisa, hann er að tala við vin hans. Vinurinn ætlar nú að kynna þá hvorn f.yrir öðrum, en þá segir ungi maðurinn: »Við höfum þekst í mörg ár«. »Afsakið, en yður skjátlast víst«, sagði Bergur kaupmaður, »að vfeu hefi ég gefið því gau.m, hve vingjarnlegá þér hafið heilsað mér morgum sinnum, en þér hafið eflaust tekið mig fyrir eín- hvem annan«. »Nei, það er langt síðan ég kyntist vð- ur«, svaraði ungi maðurinn, »og mér þykir vænt um að fá nú loksins tæki- | færi til þess að þakka yðu.r«. Og fyrir hvað ætti það nú að vera?« spyr kaupmaðurinn. »Það er gömul saga«, sva,raði hinn, »og er þér heyrið hana minnist þér min máske þótt langt sé um liðið síðan, — Ég var þá níu ára gamall og á leið í skólann. Ég gekk yfir torgið, en þar voru margar körfur fujlar af ávöxtum. A ]5eim dögum fékk ég, sjaldan ávexti. svo það var erfitt að ganga fram hj-i þeún Ein af sölukonunum var að spjalla við nágrannakonu sína og sneri baki að körfu sinni. Aköf löngun g'reip mig að taka bara eitt einasta epli, ég rétti fram hendina til þess að ná í það og stinga því með gætni í vasa minn, en í sömu svipan fæ ég löðrung á kinnina, svo ég slepti eplinu,. »Heyrðu drengur minn«, sagði maðurinn, sem gaf mér löðrung- inn, »þú hefir vist lært sjöunda boðorð- ið? Ég vona að þetta sé í fyrsta skiftið, sem þú hefir brotið gegn því, og1 láttu það nú vera í síéasta sinnx. Ég gat naumast litið upp, svo blygðaðist ég mín. En aldrei hefi ég samt getað gleymt andliti mannsins. Altaf minnist ég orðanna: »Láttu það néi vera í síð- asta sinn«. Er ég hafði lokið skólanámi komst óg' að verzlunarstörfum hér heima, sigldi síðan til Ameríku, og rak verzlun þav um nokkurt skeið. Oft kom, freistingin að rétta fram hendina. eftir eigum ann- ara, en þá mintist ég æfinlega löðr- ungsins og orðanna: »Láttu það nú vera í síðasta sinn«. Og lof sé Guði, eigur þær, sem ég hefi aflað mér, hefi ég aflað á heiðarlegan hátt«. Því næst tók hann í hönd kaupmann- inum og sagði: »Leyfið mér nú að þakka yður og taka með lotningu í þá hönd, sem framkvæmdi þetta, góðverk á mér«.

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.