Nýtt kirkjublað - 01.01.1906, Page 9

Nýtt kirkjublað - 01.01.1906, Page 9
________ _ _ _ NÝTT KTBTLTUBLAÐ.^_______________ 5 un, vöktu með dæmi sínu og orðum eftirtekt hans á kristin- dóminum. Og brátt varð kristindómurinn honum hjartans alvöru-málefni. — Hann virðist hafa haft mjúka og viðkvæma lund og vrrið ör og ákafur í skapi. með framtakssaman huga. Öll hálfvelgja var honum óeðlileg. Þegar hann var 16 ára varð hann lærisveinn í sunnudagaskóla, ogkennari við sama skólann skömmu síðar. Hann og félagar hans héldu líka smá-samkomur í herbergjum þeirra og buðu þangað jafnöldrum sínum, og þessar samkomur voru haldnar með fjöri og kristi- legri alvöru, svo að þær höfðu talsverð áhrif. Þatmig lærði Williams ekki aðeins verzlunarstörf í Bridgewater, heldurfékk hann þar einnig sína fyrstu æfingu í kristilegu starfi meðal ungra manna. Svo kom hann í október 1841 til Lundúnaborgar. Afarstórt verzlunarbús stendur beint á móti binni mikilfenglegu Páls- kirkju og snýr út að einni af höfuðæðum hinnar miklu heims- borgar, þar sem manngrúinn og vagnafjiildinn er eins og belj- andi árstraumur. Áttu þá verzhm þeir George Hitchcock & Co. Þar fékk Williams stöðu sem yngsti búðai'sveinn og var ])á tvítugur að aldri. — Bragurinn á verzlunarstéttinni i Lund- únum var ef til vill enn þá verri en nú, og stórborgar-lest- irnir: drykkjuskapur og lauslæti, voru á mjög háu stigi. Margir ungir verzlunarmenn fengu dögum saman enga hreyf- ingu aðra en úr búðinni og upp á kvistinn þar sem þeir sváfu, og þegar þeir fengu að koma út og eiga fri, höfðu þeir eng- in betri bæli en veitingahús og skemtistaði af lakara taginu. Framferðið og hegðunin hjá þessum uppvaxandi verzlunarlýð var svo eftir því. Menn geta sett sig inn i hve mjög það hafi hlotið að særa hið viðkvæma hjarta George Williams að þurfa að sjá og heyra allan þann ósóma, er átti sér stað meðal félaga hans. Hann úthelti því hjarta sínu fyrir guði á einverustundunum í svefnherbergi sínu, og það sem hann sérstaklega bað um var það, að honum mætti auðnast að finna einhvern samhuga sér. Smith hét sá er Guð sendi honurn. Þeir tóku höndum saman og byrjuðu á samskonar samkomum og George hafði haldið í Bridgewater. Ymsir ungir menn af stallbræðrum þeirra drógust að þeim, og brátt varð flokkurinn svo stór, að þeir urðu að biðja húsbóndann um stæi'ra herbergi.

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.