Nýtt kirkjublað - 01.01.1906, Síða 10
6 NÝTT KIRKJUBLAÐ.
Herra Hitchcock, sem annars aldrei hafði kært sig um krist-
indóminn, gazt vel að hinni fordildarlausu og kurteisu beiðni
liinna ungu manna og veilti þeim hæn jieirra. — Þetla varð
til þess, að hann tók að veita þessum ungu mönnum, sem
játuðu kristindóm sinn, meiri athygli, og það leið ekki á löngu
þangað til hann sneri sér til Krists og gekk opinberlega í lið
með hinum trúuðu þjónum sínum. Það máltak hans er frægt
orðið, sem hann notaði, þá er hann tók einhvern nýjan ung-
an mann í verzlun sína: „You please God, and you vill
please me.“ (Þóknastu Guði, og þá muntu verða mér til geðs.)
Þannig liðu 3 ár. Bar þá svo við eitt sunuudagskvöld
seint í maí 1844 að tveir ungir menn gengu saman yfir
Black Friar Bridge, brú á Temsá; voru þeir á kirkjuleið.
Turnhvelfingin á Pálskirkjunni gnæfði í bæjarmekkínum
upp yfir óteljandi reykháfa borgarinnar; smábátar voru á ferð
upp og niður ána og ótölulegur grúi manna var á gangi á
brúnni eins og vant var. Er hinir ungu menn höfðu gengið
nokkra stund þegjandi, nemur annar þeirra alt í einu stað-
ar og gripur í handlegg vinar síns og segir: Teddy, areyou
ready to do any tliingfor Christ? (Teddy, ertu reiðubúinn
til ]>ess að gjöra eitlhvað fyrir Krist?). Það var George
Williams, er mælti þessum orðum. Teddy kvaðst halda að
hann væri i'eiðubúinn til þess, ef krafist yrði. Williams bar
svo upp þá hugsun að fá aðra kristilega hugsandi unga menn
frá öðrum verzlunarhu-urn tif þess að vinna saman að kristi-
legi i félagsstarfsemi meðal ungra manna. Þetta samtal leiddi
til þess að fhntudaginn 6. júní 1844. var haldinn fundur
þar sem viðstaddir voru 12 ungir rnenn, 3 úr hverri hinna
fjögurra höfuðkirrkjudeilda Englands.
Þar var svo „Kristilegt félag ungra manna“ stofnað —
„Young men’s christian association" (Y. M. C. A.) — Herberg-
ið stendur enn]>á ósnert og er kent við Jerúsalem, „theioomof
Jerusalem“. En hinn eiginlegi fæðingartími félagsins var þó
samtals-stundin á brúnni yfir Temsána. Og undirrótin til ]>ess,
eins og til allra þýðingarmikilla hreyfinga í kirkjunni, var þessi:
Kærleikurinn lil Jesú Krists i manshjartanu. Kærleikurinn
til Jesú í hjörtum postulanna og kirkjufeðranna hélt forn-
kirkjunni up]>i og leiddi hana til sigurs. Kærleikurinn til
Jesú í hjarta Franz frá Assisi gaf þúsundum af hinum kristna