Nýtt kirkjublað - 01.01.1906, Page 11
NÝTT KIRKJUBLAÐ. 7
lýö miðaldanna andlega endurnýjungu og framleiddi starfsamt
bæjarlíf og yndislega íþrótt. Kærleikurinn til Jesú í lijarta
Zinzendorfs greifa varð uppspretta liins stórmerka kristni-
boðs Bræðrasafnaðarins meðal heiðingja; — og einfaldur og
innilegur kærleiki til Jesú í hjarta ungs verzlunarmanns varð,
án þess að hann óraði fyrir ]iví, byrjunin á félagshreifingu,
sem nú nær yfir alt að miljón ungra manna af öllum þjóðum.
Þýðing sú sem jiessi hreyfing hefir haft síðastliðin 60 ár
verður eigi metin.
Þetta er nú sagan um uppruna þessa félagsskapar. I
næsta kafla skal svo útbreiðslu hans, vexti og viðgangi verða
lýst. En vér viljum enda þenna kafla með því að segja frá
aðaldráttunum í lífi George Williams. I öll þessi 61 ár sið-
an hann stolnaði félagið, hefir hann starfað í því. Hann var
alt af við sama verzlunarhúsið og varð seinna meðeigandi að
])ví og varð auðugur og velmetinn maður. Arið 1894 var
haldin 50 ára afmælishátíð félagsins og var þá stofnandinn
sæmdur bæði nafnbótum og stórgjöfum. Viktoría drotning
sæmdi hann aðalsmannsnafnbót og hann var kjörinn heiðurs-
borgari Lundúnabæjar, og var það greinilega tekið fram, að
htínum veittist þetta vegna þein-a óumræðilegu blessunar-áhrifa,
sem félagið hefði haft á svo marga unga menn þjóðarinn-
ar. — Á hverju ári sendi hann út nýársávarp til allra fé-
laga heimsins, og í vetur sem leið tók hann þátt í heims-
fundinum í Paris. Hann var þá samt lasinn, og lmignaði
lionum eftir það, og andaðist hann 11. nóvemb. síðaslliðinn
og var hann borinn yfir götuna yfir í Pálskirkjuna og
jarðaður þar meðal svo margra heimsfrægra manna svo sem einn
af velgjörðamönnum mannkynsins.
„Dýrðar“-söngurinn
(Thc ,,Glory“-Song), som liór fer á oftir, or frægastur allra trúarljóða
nú um hinn enskumælandi heim. B«ði textinn og lagið er eftir ungan
vesturlieimsmann Mr. Gabriel. Til Norðurálfunnar berst hann fyrir
tveim árum með þeim trúboðunum dr Torrey og Mr. Aloxander, sem
höfðu tekið hann upp i söngbók þá, er þoir nota á samkomum sínnm
(„A'exander Bevival Hymns“). Frá samkomum þeirra (fyrst í Molbourne
í Astraliu og seinna viðsvegnr á Englandi) hofir Dýrðar-söngurinn breiðst
út á moðal almennings með meiri hraða en nokkur söngur annar, og er
nú sunginn af þúsundum um allan hinn evaugeiíska heim.