Nýtt kirkjublað - 01.01.1906, Side 18
14 NÝTT JIIEKJUBLAÐ.
einkar gott, til verulegs stuðnings kristindómi þjóðar vorrar
og íslenzkum bókmentum til sóma.
Af kirkjulegu tímaritunum okkar áttu Aldamót hvað jafn-
ast erindi til allra Islendinga beggja megin hafsins. Samein-
ingin er farin að verða okkur hér heima helzt lil „arnerí-
könsk,“ sem ekki er nema eðlilegt, og eitthvað líkt á hinn hóg-
inn kann þeim vestra að finnast um frónsku kirkjublöðin.
Aldamól komu öll í einu og voru því vel sett með það að
flytja langar ritgerðir, sem líðast voru fyrirlestrar frá kirkju-
þingunum, flestir og beztir eftir þá síra Jón og ritstjórann.
Nú hin síðustu árin voru Aldamót og farin að flytja fleiri og
fjölbreyttari ritgerðir frá sjálfum ritstjóranum, og kendi þar
œ ljósar þess anda, sem hugsandi mönnum kirkjunnar hér
heima var sérstaklega hugnæmur. Enn mætti minna á dóma
ritstjórans um íslenzku bókmentirnar árlega, þeirra munu
margir sakna.
I stað Aldamóta er nú koinið ársrit frá kirkjufélaginu,
og heitir það „Árarnót". Skylt á það rit við Aldamót að
því leyti, sem það flytur kirkjuþingsfyrirlestrana og þingsetn-
ingar-prédikunina, en nýja ritið ei- þó nú aðallega skýrsla
frá kirkjuþinginu. Ritið er gefið út af skrifurum kirkju-
félagsins, þeim sira Birni B. Jónssyni og síra Runólfi
Marteinssyni, með því innihaldi sem kirkjuþingið hefir á-
kveðið, og um ritstjórnargreinir er þar eigi að ræða.
Fundargerðirnar taka upp fyrri helming ritsins. Þá er
þingselniugarræðan haldin af síra Friðrik J. Bergmann, fyrir-
lestur eftir síra N Steingrím Þorláksson um „Merkjalínur, “
fyrirlestur síra Jóns, sem heitir „Helgi hinn magri“, og inn-
gangsræða á trúmálafundi eftir síra Friðrik Hallgrímsson um
dómsdag.
Búist er við því, að kirkjufélagið gefi framvegis út ársrifc
ineð líku sniði. Þetta rit félagsins verður eflaust haft á boð-
stólum hér á landi, og ætti að verða keypt og lesið. Oss ríð-
ur á því margra hluta vegna, að halda bandinu sem traust-
ustu við bræður vora vestra, og vera með lífi og sál inni í
baráttu þeirra fyrir kristindóminum og viðhaldi íslenzkrar
þjóðmenningar.
Fyrirlestur síra Jóns er eins og jafnan tilkomumikill og
íhugunarverður, bæði til samþykkis og andmæla, og mun