Nýtt kirkjublað - 01.01.1906, Page 19
NÝTT TCTRTC.TUBLAÐ. 15
Nýja kirkjublaðið síðar korna að honum. Að þessu sinni
skal eif’i frekar farið út i efni hins nýja kirkjurits, en brýna
vildum vér pað fyrir lesendum vorum, að kynna sér eigi sið-
ur sjálfar fundargerðirnar. Slíkur lestur þykir ])ur, en mik-
ið er á honum að græða.
Þetta hið tuttugasta og fyrsta ársþing hins evangeliska
lúterska kirkjufélags Islendinga í Yesturheimí var haldið í
Minneota, þar sem síra Björn B. Jónsson, bróðursonur Krist-
jáns skálds Jónssonar er prestur. Þingið stóð yfir 6 daga
frá 22—27. júni. Auk prestanna níu, voru ])ai' um 30 safn-
aðarfulltrúar eða erindsrekar, og hafði þó meiri hluti hinna
smærri safnaða eigi sentneinn fulltrúa. Síra Oddur V. Gíslason
er enn talinn 10. presturinn í kirkjufélaginu, en virðist nú vera
utan við félagsskapinn. A þinginu i sumar sem leið voru
i kirkjufélaginu 37 söfnuðir, en 2 bættust þá við, annar þeirra
Tjaldbúðarsöfnuður í Winnipeg, sem síra Friðrik J. Berg-
mann hefir þjónað undanfarið. Að þeim söfnuðum meðtöld-
um verður fólkstalan í félaginu um eða yfir 7000. Sunnu-
dagaskólakennarar voru árið 1904 að tölu 141, og nemend-
ur innritaðir 1532. Af 22 söfnuðum norðan „línunnar" eða
i Kanada höfðu ekki nema 12 fastan prest. Hjá þessum
dreifðu prestlausu söfnuðum hefir slarfað síra Pétur Hjálms-
son, sonur Hjálms heitins alþingismanns Péturssonar í Mýra-
sýslu; fær síra Pétur mikið lof fyrir ötulleik sinn og ágætan
árangur af umferðar-þjónustunni. Vouir eru um að prestar fáist
smám saman til þessara safnaða við nám þarlendra Is-
lendinga.
Arangurinn af stofnun íslenzka kennaraembættisins við
Wesley-skólann í Winnipeg virðist vera einkar góður. Áhug-
inn fyrir viðhaldi íslenzkrar tungu og fyrir íslenzkum bók-
mentum fer vaxandi, en kennarinn síra Friðrik J. Bergmann
kvartar undan því, að helzt til fáir af uppvaxandi kynslóð-
inni noti sér lýðskólana nógu vel til þess að geta á eftír
gengið í hinn æðri mentaskóla. Árið 1904 voru 27 íslenzkir
nemendur á Wesley-skólanum, og var vorprófið síðusta ís-
lendingum tii hins mesta sóma. Nú er annað íslenzkt kenn-
araembætti komið á fót við hinn almenna æðri mentaskóla,
sem kendur er við Gustaf Adolf, í bænum St. Peter í Minne-
sotaríki í Bandafylkjunum, og réðist þangað kennari héðan í