Nýtt kirkjublað - 12.07.1907, Qupperneq 2

Nýtt kirkjublað - 12.07.1907, Qupperneq 2
±46 NÝTT KIRKJÚBLAÐ. ekki ilt, gleðjum oss ekki af óréttvísi, samgleðjumst sannleik- anum — eins og Páll postuli lýsir kœrleikanum. Undirrót alis kærleika er þetta, að guð elskar oss. Öll hans boðorð og setningar sprelta því af elsku hans til vor og eru í samræmi við insta eðli lífs vors. Hann þekkir alla vora sönnustu þörf og ]jess vegna liefir hann gefið oss ]iað boðorð, að vér skulum elska hann. En með ]iví eðli kærleik- ans er slíkt, að enginn getur elskað eftir valdboði einu og af ]iví að syndin hafði blindað svo augu vor, að vér hættum að þekkja ákvörðun vora, ]iá sendi guð son sinn í heiminn, fi’elsara vorn Jesúm Krist, til þess að opinbera oss hinn eilífa föðurkærleika guðs og gefa oss knýjandi ástæðu og hvöt til ]iess að elska guð, með því að sýna oss og sanna. með kær- leikslifi sínu og fórnardauða fyrir oss, að guð elskaði oss að fyrra bragði. Og til þess að leiða oss inn í lif kærleikans, sem er vort sanna og heilbrigða líf, gjöi'ðist Jesús vegurinn til föðursins, svo að hver sá sem í lifandi trú meðtekur þennan eilífa sáttmála milli guðs og manna, fær hlutdeild í kærleiks- fyllingu guðs og öðlast aftur þá heilbrigði lífsins, sem synd vor og hin ranga sjálfselska hafa svift oss. Og á því skyldi það sjást, hvort vér lifðum samkvæmt þessari vorri eilífu ákvörðun, að vér elskuðum bræðurna, elskuðum náungann eins og sjálfa oss. Þar sem því sönn trú á heima í hjörtunum, þar sem menn lifa i sönnu lífssambandi . við hann, þar hlýtur þetta kærleikslíf að koma í ljós, annars getur trúin á hann ekki verið annað en munnfleypur eitt og bégómamál. Sé Jesús Kristur í raun og veru orðinn vort líf, þá fer kærleikurinn að vinna verk sitt inn á við i hjörtum vorum, upp á við í sam- félagi voru við guð og út á við í umgengni vorri og allri starfsemi. Þar sem þessi kærleikur fær að þroskast meðal manna breytir hann allri sambúð og setur sinn blæ á alt líf vort og alla framkomu í stóru og smáu. Og fái kærleiki guðs í Kristi Jesú vald yfir heilli þjóð eða meginþorra ein- staklinga hennar, ]iá verður hann undirrót, grundvöllur og uppspretta hinna beztu, sönnustu og heilladrýgstu þjóðþrifa. Hjá þeirri þjóð yrði ættjarðarástin heit, göfug og hrein, án undirróðurs og æsinga, þar ætli sér ekki langan aldur tor- trygni, valdafíkt, úlfúð og rógburður. Þar niundu allir hald-

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.