Nýtt kirkjublað - 12.07.1907, Síða 9

Nýtt kirkjublað - 12.07.1907, Síða 9
NÝTT KIRKJUBLAÐ. 158 einnig sálailífsins — sem skyldnst er náttúrunni. En til er önnur og æðri hlið þess, sein þú hefir ekki komið auga á. Það er hinn mikilfenglegi frjálsi heimur, þar sem allir hinir afdrifamestu bardagar mannlífsins eru háðir, bardagarnir milli góðs og ills. Honum gleymir þú, af þvi þú hefir sökt þér niðrí efnið (materiuna) upp yfir höfuð. Þennan heim girnist þú að draga niður i orsakasamband efnisins, og þú vilt fara með gott og ilt líkt og sykur og vitriól, enda þótt þú sjáir, að tækist þér tilraun þín, þá er mannkynið orðið dýri líkt frá sömu stundu. I nafn alls sem aðall nefnist hjá stríðandi mannkyni, látum vér ekki frá oss taka þennan heim frelsis- ins. Og í þes&um heimi, sem þú ekki hirðir um að kynnast, þar er það fyrst og fremst sem guð kemur til móts við oss, sá guð, sem bæði hefir skráð alheiminum lögmál sitt og sett æðri reglur fyrir góðu og illu. Hann er það sem leggur hina óendanlegu áherzlu á mismun góðs og ills, sem mannsins að- all er að taka tillit til. (Niðurl). Im heimspGkina og guðfræðina þýzku. Þáttur úr íerðabökar-liaudritt séra Tómasar Sæmundssonar. ----- Niðurl. En þeir sem annaðhvort ekki geta eða ekki sýnist nauðsyn á að fallast á þvíiíkt, og þó vilia sannleikanum vel, og álíta það — sem það og er — skyldu og guðs vilja að rannsaka hann dagdómalaust eftir fremsta megni. hafa leitast við að útlista þennan undarlega og einstaka atburð í veraldarsögunni, Krists komu til veraldar. eins og hvern annan atburð, hvar að sönnu ekkert frábrugðið því almenni- lega undirbúi, heldur megi þar sem alstaðar í veraldarsögunni sjá guðs föðurlegu stjórn, sem er alt í öllu. Eru þvílíkar til- raunir þegar þær koma af hreinum hvötuin, ekki síður virð- ingarverðar eður nytsamar en hverjar aðrar. Til þess eru forsvararar og óklagarar settir í hverju rnáli, að dómari geti réttar dæmt, er hann hefir þannig séð bvað segja má með eður móti sökinni Aklagarinn veil oft hinn ákærða frían og heldur hann saklausan. enn vill ])ó og álítur skyldu sína að færa alt það fram honum til áfellis sem hann getur Ein- asta má hann áklaga sjálfan sig ef hann fram færir ákærur, sem hann veit eru lognar, í þeim tilgangi að gjöra honum skaða með því Það getur ekki heldur verið guðs tilætlun, sem

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.