Nýtt kirkjublað - 12.07.1907, Síða 11

Nýtt kirkjublað - 12.07.1907, Síða 11
NYTl' KIRKJRLAÐ. ^ _ 155 allir lœrðir mega knnna þeim þakkir fyrir hvað þeir meS skarpleika sínum og starfsemi hafa flýtt hinum guðlegu vís- indum áleiðis, — þó að gefa skynseminni óskynsamlega taum- inn, ekki síður en hinir tilfinningunum. Kristindómuriun sam- einar hvorttveggja, tilfinnan og skynsemi, eins og þœr og eru óaðskiljanlegar, og hann yfirgrípur alla mannsins veru jafnt; sér- hver, jafnt alþýðleg og lserð, undirvisan eður rifgjörð í kristin- dómi verður að ástunda að liafa nokkuð af hvorutveggja, og gefa hvorutveggja nokkra nœringu hjá þeim sem heyra eður lesa. Það er sá gullvægi meðalvegur, sem í Þýzkalandi ogsvo ílest- ir ganga, og hafa þeir ætið fyrir sér i þvi nokkur stærri ljós, sem þeir ganga eftir. Enginn hefir á nýrri tímum áunnið sér þar svo stórt nafn sem Schleiermacher, kennari við háskólann og kenni- maður við þrenningar-kirkjuna í Berlin. I honum sýndist alt sameinað, sem gæti gert einn guðfræðing stóran: fyrst djúpsæ þekking undirbúnings vísindanna, málfræði, sagnfræði og heim- speki, hversvegna hann og útlagði á sitt móðurmál, betur en nokkur hafði áður gjört, verk heimspekingsins Platóns. Þar næst hafði hann staklegan skilnings-skarpleik og djúpsæan kristilegan anda og málsnilli Hefir hann eftir sig látið mörg verk i heimspeki og öllum greinum guðfræðinnar og eru meðal þeirra merkilegust hans utlegging Lúkasar-guðspjalls, og kenslubók hans í trúarbrögðunum (Der chridliche Glaube), sem fleirum [sinnum] hefir prentuð verið, og þykir það hið mark- verðasta rit um vor trúarbrögð á nýrri tímum. Hefir hann gengið sinn eigin veg og rannsakað hina kristilegu trúarlær- dóma alstaðar með auga sinnar aldar og eigin Iieimspeki og bygt trúna á nýjum grundvelli, hinni náttúrlegu tilfinnan hvers eins um. að hann sé áfastur við eitthvað hærra og guðdóm- legt. Þykir þar i helzt ábótavant, að dómi fjöldans hinna lærðu, að hann ekki aðskilur nógu stranglega veröldina og guð, og er hneigður til náðarvals-lærdómsins áþekt Kalvín. Schleiermaeher er ekki siðri klerkur en hann er kennari, og eru ræður hans, hvar af margir árgangar eru á prenti, taldar meðal hinna beztu á þýzku máli hvar við bæta má, að hann hefir aldrei skrifað nokkra prédikun, heldur talaði hann jafnan frítt upp úr sér á prédikunarstólnum; hafa þá einhverjir orðið til að skrifa upp jafnóðum hvað hann sagði og fengið honum það aðejns

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.