Nýtt kirkjublað - 12.07.1907, Page 12

Nýtt kirkjublað - 12.07.1907, Page 12
156 NÝTT KIRKJUBLAÐ. til gegnumlesturs áður prentað yrði. Sá ég og þess merki, er ég heyrði hann prédika; því ég var þá jafnan nálægur er ég gat því viðkomið, og [eins] heyrði ég hans fyrirlestra oftast nær. Blöskraði mér mest, hvað miklu hann gat afkastað og þó í öllu jafnlaglega; hélt hann, er ég var í Berlín, þrjá fyrir- lestra, 16 tíma í viku hverri, yfir siðfræðis-heimspekina, útlist- an nokkurra Páls bréfa og lífsögu Jesú, og prédikaði þó líka á sunnudögunum. Þótti mér það eina stundum að honum í kenslu-stólnum, að mér fanst skilningurinn rétt sem bera gáf- urnar ofurliði, og hann því oftar fara utan hjá hinum algenga veginum en þörf var, svo ekki var trútt um að stundum keimaði að hártogun; í prédikunarstólnum gætti þess minna og var hann þar öllu hjartanlegri. [H. N.] Clausen, kennari við háskólann í Khöfn, þykir mér þess vegna taka honum fram [í sumu] og i engu vera hans eftirbátur; eru þeir og að mörgu líkir. Schleiermacher hafði jafnan fult hús áheyr- enda sem nærri má geta; hafði hann líka eitthvert hið lag- legasta málfæri, ekki hátt eða sterkt, en hjartanlegt og sann- færandi. Hann kvað segja, að meðal þein-a manna er sig heyri á háskólanum, megi þrjá flokka aðgreina, stúdentana, stúlkurnar og liðsforingjana: Stúdentarnir segir hann, að komi fyrir hans skuld og til að fræðast, stúlkurnar vegna stúdent- anna, en herstjórarnir vegna stúlknanna! Eg girntist mjög að sjá Schleiermacher, því að ég hafði margt heyrt og lesið af honum; veittist mér það og 3 dögum eftir það ég kom lil Berlín á blómstranna hátíð; leiddi þá dr. Levvetzow*) mig fyrir hann sem Islending, er óskaði að heyra hans kenningar. Schleiermacher sagði það velkomið með mikilli blíðu og spurði mig um, hvernig mér gengi með þýzk- una o. 11. Eg hafði áður enga ímyndun gert mér um útlit hans, og einasta séð hans andlitsmynd, en hvað brá mér ekki í brún, er mér var sýndur hann, ekki stærri en mér í hönd, — svo að í hvert sinn verður að hlaða und r hann, er hann prédikar, — og allur vanskapaður með huúð út úr *) Dr. Lewetzow var próf'essor og nmsjónarmaður fornleifanna i hinu nýja mentubúri (Museums-Direclör); segir séiu T. um hann, að enginn hafi átt meiri hlut í að styrtja sis til að ná tilgungi sinum í Berlín en hann og gera sér dvölina þar lfierdómsríka og ánœgjusama.

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.