Nýtt kirkjublað - 12.07.1907, Qupperneq 13

Nýtt kirkjublað - 12.07.1907, Qupperneq 13
NÝTl1 KIRKJUÖLAÐ. Í57 bakinu; andlitiS er þó fallegt og viðfeldlegt, höfuðið hvítt. Má ég játa, að ég hefi ekki nálgast neinn mann með meiri lotningu en hann, er mér kom í hug hin stóra sál sem bjó i þessum lítilfjörlega líkama. Næsta sumar eftir heimsótti Schleiermacher Kaupmannahöfn ogvar honurn [vel] tekiðað verð- ungu af hinum lærðu, og stúdentarnir ílokkuðust með hlysum fyrir utan bæ að húsinu, hvar honum var haldin veizla, og fylgdi honum stór ílokkur þeirra til Skáneyjar, er hann fór til Svíaríkis alfarinn þaðan; átti hann þá ekki langt eftir ólif- að, því að hann dó undir árslokin*j, er ég var nýkominn til París, 66 ára gamall, og var likför lians hin veglegasta í Berlín, er menn þóttust séð hafa Hélt meðal annara Steffens ræðu yfir gröf hans, sem að minnum er höfð. Hafði hann aldrei átt sérlegri náð að fagna hjá konungi Prússa; bar það til þess, að konungur hafði látið samantaka nýtt kirkjusiða- lögmál og hoðið, að það skyldi innleiða um alt ríki silt, en sumir settu sig þar á móti og var Schleiermacher mest máls- metandi þeirra. Kvað hann konung ekki hafa vald á að bjóða neitt i trúarbragðaefnnm, og brúkaði það aldrei sjálfur Enn mætti nefna meðal hinna stærstu guðfræðinga dc Wette [f 1849], sem skrifað hefir kenslubækur í mörgum greinum guðfræðinnar og [þar á meðal] kristilega siðalær- dómsbók, sem mjög er orð á gert. Hefir hann og orðið fyr- ir mikilli óvild Prússa-konungs, svo að honum var vísað úr landi, og mæltist það mjög illa fyrir, er mönnum kom saman um, að hann hefði saklaus fyrir því orðið. Fór de Wette þá til Basel, og fyrirbauð þá og svo konungur, að nokkur sinn undirsáti mætti þangað fara til kenslu, svo sem eins og til að halda hinu sama fram, sem hann hafði byrjað. Twesten í Kiel er annar sá, sem fyrir lærdóm sinn er nú þjóðkunnur orðinn; er hann Schleiermachers lærisveinn, og segja menn, að hann i höfuðverki sínu, sem rélt nýlega er útkomið til enda, um liina kristilegn trúarlærdóma, taki jafnvel kennara sínum fram. Hefir hann í verki þessu lagt de Wettes kenslu- hók um höfuðlærdóma trúarinnar til grundvallar. Hcirjenbacli i Basel og Hase í Leipzig eru meðal þeirra uppvaxandi, sem einna mest er farið að bera á, og gefa þeir og aðrir slíkir *) Hér runguiinnir ])ó höf., ]>ví uð Schleiurm. dó 12. febr. 1834.

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.