Nýtt kirkjublað - 12.07.1907, Qupperneq 16

Nýtt kirkjublað - 12.07.1907, Qupperneq 16
Í60 NÍTT KIRKJURL.VÐ frumvarpi stjórnarinnar ]mr að lútandi að visu vera talsverða bót frá ]jví sem nú er, en þó oílitil í sjálfu sér, ekki að eins í samanburði við laun annara embœttismanna, Iieldur og verkmanna alment, eins og gerast nú á tímum. Til þess að bœta úr þessu virðist ekki verða hjá þvi komist að hækka að mun laun þeirra.“ Sú tillaga vai og borin upp og samþykt: „Sýnodus telur æskilegt, að allir þeir prestar, sem nú sitja við lægri Iaunakjör eftir hinum eldri reglum, geti sem fyrst komist undir ákvæði frumvai'psinS.“ Frumvarpið um laun prófasta kom til umræðu ogtillaga borin upp og samþykt: „Sýnodus telur æskilegt, að laun prófasta verði hækkuð frá þvi sem þau eru ákveðin í frumvarpi stjórnarinnar, sér- staklega ef þau störf, sem presllaunafrumvarpið gerir ráð fyrir, verða á þá lögð“. Samþykt var að taka eigi til umræðu frumvarp til laga um umsjón og fjárhald kirkna, um ellistyrk og eftirlaun, um skyldu að kaupa ekkjum lífeyri, um sölu kirkjujarða og um byggingarlán til prestsetra. Biskup las upp álit nefndar þeirrar, er hatt bafði til meðferðar bréf það, er Sýnodus barst í fyrra frá séra Hjör- leifi Einarssyni um kristniboð. Nefndin hafði eigi séð sér fært að leggja til, að Sýnodus taki málið að sér eins og það liggur fyrir. Biskup skýrði síðan frá biblíuþýðingunni. Nýja testa- mentið mundi vera komið á sölumarkað í nýju þýðingunni nú um mánaðarmótin. Við þýðingu gamla testamentisins væri nú lítið annað eftir en að færa inn samanburðarstaði, og mundi byrjað á prentun síðari hluta sumars. Loks skýrði bi.-kup frá, að nú væri hægt að færa inn í endurskoðaða handbók orð hinnar nýju þýðingar og mundi bann vinna að því nú hið fyrsta, og fá handbókina löggilta. JBjarmí, kristilegt heimilisbluð. Kemur út tvisvar í múnuði. Verð 1 kr. 50 a , í Ameriku 75 cent. Ritstjóri Bjarni Jónsson kennari. Fólagsprontsmiöj an.

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.