Nýtt kirkjublað - 24.07.1907, Page 5
NÝTT KIRKJUBLAÐ.
165
oss verða að einhverju ljóst hvað ]iað er að „ganga fram
fyrir guð i öruggu trúnáðartrausti“. — —
I nánu sambandi við þessa ósjálfráðu (mekanisku) heim-
skoðun, sem ég hefi talað um, stendur framþróunar — eða
„evolutiónar“-l;enningin, sem, venjulega er kcnd við Darwin.
Um þessa kenning vil ég leyfa mér að segja eins og nýlega
var sagt um „sócíalista“-kenninguna, að í henni er nukið bæði
af góðu og af illu. Framþróunar-hugsunarinnar gœtir mjftg
í heilagri ritningu og einkum hjá Jesú sjálfum; ef cg mœtti
komast svo djarflega að orði vildi ég segja, að Jesús Kristur
sé faðir framþróunar-kenningarinnar. „Svo er og um guðs
riki sem maiður kasti sœði á jörðina...........og sæðið grær
og vex, hann veit eigi með hverjum hætti: Af sjálfri sér
ber jörðin ávöxt, fyrst strái'ð, þá axið, þá fitlt hveitikorn i
axinu. En er ávöxturinn er þroskaður, sendir hann þegar
út kornsigðina, því að uppskeran er komin“. Og þetta segir
hann með hliðsjón á þeirri skoðnn. sem var svo algeng meðal
samtíðarnmnna hans og einnig meðal lærisveinanna, að guðs
ríki ætti að myndast svo að segja í einni svipan, svo að
allir gætu á því þreifað. Gagnvart þessu heldur hann fram
hinum hægfara vexti. stig af sligi, svo sem grundvallarlögmáli
guðs j'íkis og þá um leið veraldarsögunnar, já gjörvallrar
heimsþróunarinnar Og aftur og aftur verður þessi sanm
hugsun á vegi vorum í dæmisögum hans, t. d. um mustarðs-
kornið, sáðmanriinn, illgresið og hveitið, súrdeigið o. s. frv.
Hin lifandi franiþróun, liinn lifandi vöxtur er anðsæilega
fvrir honum ein af frumhugsunum tilverunnar. Það er ekki
óhugsanlegt, að einhver grískur spekingur hafi sett þessa
hugsun fram á undan timbursmiðnum frá Nazaret, ég veit
það ekki. En víst er það, að enginn hefir með jafnmiklum
styrkleika gjört hana að heimslögmáli.
En svo góðra gjalda vert sem það er, að framþróunar-
kenningin hefir dregið fram þessa kristilegu frumhugsun, þá
er sízt fyrir að synja, að þar kennir nmrgra öfga og marg-
víslegs ranghermis. Það rlður á að greina livað frá tíðru, satt
og ósatl í þessari miklu uúliðar-kenningu. Og á því starfi
eru menn þegar byrjaðir. Sérstaklega eru menn larnir að
gagnrina kenningar Darvvins með mikilli nákvæmni. Og hér
virðist mér vera verkefni fyrir kristna stúdenta, kristna nátt-