Nýtt kirkjublað - 15.06.1908, Side 8
144
NÝTT KIRKJUBLAÐ
á þær bækur, sem flytja oss hana, og meðal þeirra bóka
verðskuldar biblían langmest að heita öllum öðrum bókum
fremur og í sérstökum skilningi (par excellence) bókin guðs,
af því að hún hefir að geyma hina guðlegu opinberun, sem
nær hámarki sínu í hinni sannsögulegu komu Krists, í lífi
hans, dauða og upprisu, og í fagnaðarboðskapnum, sem þar
er fluttur.“
Stead hyggur, að yfirlýsingarmennirnir mundu ekki am-
ast við því, að greinin byrjaði svona.
Prestkosning fór fram í Holtsprestakalli i Önundar-
firði 23. f. m. Á kjörskránni voru 283 kjósendur, konurþremtug-
um fleiri en karlar, en áhöld voru um greidd atkvæði hvorratveggja
(58 konur). Karlmenn ekki svo fáir á skipum úti. Séra Páll hlaut
55 atkv., séra Ásgeir 49, séra Böðvar 7 og 1 ógilt. „Meiri hluti
greiddra atkvæða“ ræður veitingu. En telst ógilt atkvæði
„greitt11? Lagamenn sennilega jafnmargir með og móti um
það atriði. Þarna munaði minstu að til lögskýringar hefði
getað komið á því: Væri 1 atkv. tekið frá Á. eða B. og
lagt við P., er hann löglega kosinn, sé ógilda atkvæðið talið
ógreitt — annars ekki.
Ilt misrétti verður fyrir útsóknir við prestkosningar i
hinum geysistóru prestaköllum, þar sem kosningin verður að
fara fram á einum „hentugum11 stað. Hvernig eiga t. d.
Hellnamenn að sækja til Ólafsvíkur við væntanlega kosningu
í n. m? Að minsta kosti Iítill réttur kvenna og gamalmenna
þar. — Sókna-kosning æskileg, í stað og stað!
Yeiting-ar.
Séra Þorleifur fékk Viðvík 3% °S séra PAH Holt **/„.
Húsavíkurkirkja.
Eins og myndin ber með sér, er turninn á horninu milli vestur og
norður-arms, og af 2. lofti turnsins er gengt inn á norður og vestur-
loft. Þetta hafði misprentast í lýsingunni f nr. 11.
Synodus
byrjar föstuáug 20. þ. m. stundu fyrir hádegi.
Ritstjóri: ÞÓRHALLUR BJARNARSON.
Fólagsprentsmiöj an.