Nýtt kirkjublað - 15.07.1908, Side 1
NÝTT KIRKJUBLAÐ
HALFSMÁNAÐARRIT
FYRIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING
1908.
Reykjavik, 15. júli
14. blað
vrv~v~yrv
linnisvaFði lskov=hjónanna.
Öll íslenzku blöðin skýrðu frá dauða lýðháskólastjóra
Ludvig Schröders siðastliðinn vetur, og var þá hér í blaðinu
minztþess, að kona Schröders, Charlotte, sem dáin var nokkru á
undan honum, hefði verið ágSetum kostum búin, og hún hefði
eigi síður en hann gert skölann í Askov frægastan allra lýð-
háskóla á Norðurlöndum. Þau voru bæði um það að gera
skólann réttnefndan háskóla lýðháskólanna.
Nokkrir vinir skólans og þeirra hjóna hafa beðið mig að
rita ásamt þeim undir áskorun, að gangast fyrir samskotum
tíl minnisvarða yfir þau hjönin í Askov.
Áskorunar-ávarp það var orðað frá dönskum mönnum
til hinnar dönsku þjóðar, svo að þar gat íslendingur ekki átt
heima, en liitt veit eg að nokkrir landar liafa kynni af þeim
hjónum og elska minning þeirra þá um leið, og hinn góða
skóla, og ætla má að þeim muni kært að sýna það í verki
með því að leggja af mörkum litinn skerf til heiðursminning-
ar þeirra hjóna. Sá skerfur ætti þá að koma í einu lagi frá
Islandi. Og í samráði við nokkra vini Askovskóla, sem eg
hefi náð í hér, auglýsi eg það, að eg tek á móti slíkum gjöf-
um, og birti hér í blaðinu.
Öll Norðurlönd gefa í þessa minningu, og Island ætti
ekki alveg að sitja hjá. Um smátt eitt er að ræða.
Eg tek við gjöfunum til septemberloka þ. á.
Önnur blöð, sem þykir þetta betur gjört, en ógjö'rt, gerðu
vel í því að geta þessa.
Rv. !% 1008. Þórli. Bjarnarson.
TolubluOið þetta er á, undan tlmanum, og er sent tlt nú 1 mánaðarbyrjun með
heilu örkinni, sem dagsett er 1. júll.