Nýtt kirkjublað - 15.07.1908, Blaðsíða 2

Nýtt kirkjublað - 15.07.1908, Blaðsíða 2
162 NÝTT KIRKJUBLAÖ gynodus I9O8. Séra Eggert lial'Si að texta fyr.stu 3 versin af kærleiks- kapítulanum hjá Páli, L Kor. 13. Efni var í ræðunni. og kom hún við jörðina. Ræðum. talaði um kirkjuleg ágreiningsefni, t. d. mismun- andi skoðanir á biblíunni hér heima og vestan hafs. Alt fer vel, ef prestnrnir bera i brjósti kærleikann til Jesu Krists sem sendir þá út að starfa, og kærleikann til þeirra, sem þeir eru sendir til að starfa hjá. Fundinn sátu 17. prestar: Að austan þeir Kjartan próf, i Holti, séraEggertáBrePabólsstað, séra Þorsteinn Landeyjaprest- ur, séra Skúli í Odda, séra Olafur í Kálfholti, séra Gísli á Mos- felli. Þessir nærlendir: Séra Jens prófastur, séra Árni á Kálfatjörn, séra Halldór á Reynivöllum, séra Jóhann dóm- kirkjuprestur og séra Bjarni aðstoðarprestur i Reykjavík og prestaskólakennarar þrír. Ur Borgarfirði voru þeir séra Jón prófastur á Akranesi og séra Einar í Saurbæ. Einn prestur var lengra að, séra Jón Brandsson á Kollafjarðarnesi i Stranda- sýslu. Fundi var iokið samdægurs, 26. júní, kl. 7’/9 um kveldið. Biskup hafði vegna sjúkdómsforfalla falið forstöðumanni prestaskólans að stýra fundinum. Styrktarfénu, kr. 4390,70 var úthlutað samkvæmt tillög- um biskups. Mjög lítið hafði losnað, en margar nýjar styrk- kvaðir. Prestekknasjóðurinn er nú kominn yfir 26000 kr. Reikningur birtist síðar óg gjafalisti. Eftir lillögum sr. Skúla „lýsti synodus yfir þvi trausti lil næstu héraðsfunda í öllum prófastsdæmum landsins, að þeir gangist fyrir almennari og ríflegri franflögum presta til prestekknasjóðsins.“ Sum héruð landsins hafa alveg skorist úr leik, undanfarið. Hækka skyldi framlagið úr sjóðnum í 900 kr. næsta ár. Prestaliugvekjur nýjar komu þá til umræðu. Útgáfan talin þörf, nú aðallega um sinn til kveldlestra fram að föstu. Safnið nýja yrði þá jafnframt sýnireitur andlega gróðursins i kirkjunni íslenzku nú sem stendur. Búist við að skamt mundi útgáfumálinu til vegar komið hjá Prestafélagi Hóla-

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.