Nýtt kirkjublað - 15.07.1908, Qupperneq 5
NÝTT KIRKJUBLAÐ
16B
vegar dreg eg ekki dulur á sannfæringu mína. Bæði í tölum
minum af prédikunarstól, og í prívat samtali við menn, leitast
eg við að fá menn til sjálfstæðrar umhugsunar um trúbrögð-
in, og um sína eigin trúarsannfæring persónulega.
Eg held þeirri skoðun fram á opinberuninni, að skoða
megi öll trúbrögð sem opinberun, öll trúbrögð séu leit manns-
andans að hinum huldu ráðgátum tilverunnar. Eg kannast
ekki við þennan algerða hvilegleikamun trúbragðanna, en
óendanlega er kristindómurinn kominn hér lengra áleiðis en
önnur núlifandi trúbrögð.
Konráð Gislason átti 100 ára afmæli B. þ. m. Hans
er nú minzt með þeim, og á eftir þeim, Tómasi og Jónasi.
Lífsskoðun Konráðs breytist gersamlega við sjötugs aldurinn.
Þá missir hann konuna, sem hafði fengið alla hans kærleiks-
blíðu í bókaeinverunni. Og í harminum hamast Konráð yfir
því að geta ekki trúað, og svo gat hann trúað. Hugvekju-
safn þýzkt hefir borist mér í hendur frá Konráði, og hafði
Magnús Eiríksson átt áður. Konráð hefir valið úr 21 hug-
vekju, og ritað á blað í bókinni upphafsorð þeirra, með þeim
frágangi sem honum var laginn. Aðalefnið í þeim er endur-
fundavon ástvina. Þessi uppáhalds-húslestrabók þeirra Magn-
úsar var „Zschokke: Stunden der Andacht,“ og kannast
margir við danska þýðingu, sem er dálítið brot af hugvekju-
safninu á frummálinu.
Ögmundur kennari Sigurðsson i Hafnarfirði á allmörg
bréf frá Konráði til séra Sveins Skúlasonar, frá árunum um
og eftir 1880, þar sem trúarinnileiki Konráðs kemur fram, af
miklum hita og heilagri alvöru.
Skógræktarsjóður Friðriks konungs. Konung-
ur gaf i sumar sem leið 10,000 kr. til að eíla friðun og rækt-
un skóga á Islandi. Nú er nýkomin i Stjórnartíðindunum
skipulagsskrá fyrir sjóðinn, og á að verja vöxtunum fyrstu
20 árin til að styrkja einstaka menn eða félög, 2 á ári, til
að friða og rælda skóg. Eftir 20 ár verða það heiðursgjafir
fyrir framúrskarandi dugnað í þarfir skógræktarinnar.
Þessi sjóður verður óefað eigi síður til gagns og ónægju