Nýtt kirkjublað - 01.12.1908, Side 11
NÝTT KIRKJUBLAÐ
275
eyingum, var leikbróðir minn um nokkrar vikur, sonur eða
fóstursonur látins prests í Grímsey, og man eg tvent er hann
sagði okkur af mörgu um yfirburði Grímseyinga. Annað var
|>að, að þeir bæru ekki út ár, ef nokkur andi væri, sigldu
allan vind, og sögðum við drengirnir í landi að það væri ekki
annað en leti úr þeim. Hitt fanst okkur meira um, að Gríms-
eyingar væri svo góðir skákmenn, að eigi sæust handaskil í
boi'ðinu fyrri en anrtar hvor væri orðinn mát.
En það sem bezt kom úr Grímsey var harðfiskur, bak-
aður á klöppunum undir björgunum, sætari en alt sem sætt
var, úr úthafs seltu-loftinu, og sullkveikjulaus, því að enginn var
hundurinn í eynni. Það voru gjafaskifti, sem nú munu gengin
úr móð. Mig minnir að hann ætti heima í Básum, sá gamli
og góði frændi okkar, sem gaf okkur fiskifjórðungana á hverju
sumri, og féklc svo — aö landslagi réttu — smjörfjórðunga aftur
að gjöf. Og var það alt gert með arabískri kurteisi.
Grímseyjarpresturinn er heldur sjaldséður gestur í Reykja-
vík og N. Kbl. spurði hann því ýmsra frétta:
Býlin eru nú 13 á eynni, fólkið um 90 manns. Kirkjan
er orðin 40 ára, séra Daníel prófastur á Hrafnagili lét reisa,
var vandað til hennar og húsið málað, Rétt hjá kirkjunni
í Miðgörðum er nú risið upp fyrir 3 árum vænt hús og
myndarlegt. Það er alt í senn: skóli, samkomuhús og bóka-
safn. Húsið var reist af 4000 kr. láni, upp á Fiskes-gjöfina.
Af henni hefir stjórnarróðið nú fengið o. 9000 kr., og þegar
gjöfin er öll af hendi greidd, eftir ein 8—10 ár verður sá
höfuðstóll yfir 40,000 kr. — Verði fólksfjöldinn í eynni svip-
aður um það leyti, koma 20 kr. ársvextir á mann. Það er
eins og okkur hérna i Reykjavík væri lagðar i lófann yfir
200,000 kr. á óri. Þessari rniklu gjöf til Grímseyjar á að
verja til jarðabóta, húsa^óta og mentunar, og verða hennar ef-
laust miklar og góðar menjar er fram líða stundir.
1 skólahúsinu eru geymdar bækurnar sem Fiske hefir
gefið þangað. Þar á og að koma stór olíumynd af honum.
Auk þess eru þar myndir af honum á hverjum bæ. Guð-
mundur góði er alveg gleymdur í Grímsey, enda eru brunn-
arnir þornaðir sem hann vígði. Fiske er og verður að mak-
legleikum dýrðlingur eyjarskeggja.
Séra Matthías hefir kent 3 undanfarna vetur kauplaust,