Nýtt kirkjublað - 01.02.1909, Blaðsíða 3

Nýtt kirkjublað - 01.02.1909, Blaðsíða 3
NÝTT KIRKJÍTBLAÐ 27 tölusettar og stafmerktar sem prótókollar í skáp. En yfir merkjimum var skráð feitu letri: Skjalasafn Þingvallafnndarins 1885. Nú er aðflutningsbannið efst á baugi. Minningarhátíðin berðir á atkvæðagreiðslunni í haust — undir þingið í vetur. Atkvæðagreiðslan í haust segir rétt frá tilfinningum og óskum mikils meiri hluta í landinu. En Reglan verður að vera búin við höj'ðustu hríðinni, eftir að bannið er samþykt, hvort sem ]>að verður í vetur eða sið- ar. Þá kemur afturkastið, sem verður eithvað svo geist og grimt hér á landi, þegar stigið er fram í lengra lagi. Sumir kenna ]>að okkar hálf-keltnesku lund. Eg hefi sem margur verið hræddur og hikandi í því máli Hræddur við það eitt að þjóðin væri eigi vaxin bann- lögum. Það er gullvæg lifsregla að láta það ógert sem hug- urinn hvikar um. En óhikandi greiddi eg jákvæði með að- flutningsbanninu siðastliðið haust og mun svo gera ef aftur kæmi til atkvæða um það Sú breyting varð á huga mínum þing-sumarið síðasta, og hefir styrkzt síðan: Aðflutningsbannið er fyrir sjónum mínum auglýsing þess fyrir öllum heimi, að vér viljum vera sparneylin þjóð. Vér þurfum alveg sérstaka tamning í hófsemi og sparneytni í svo mörgum greinum, og aðflutningsbannið er einn þátturinn í þeirri tamning. Vaxandi óhóf og iðjuleysi og ógeð að stunda þarfafram- leiðslu úr skauti náttúrunnar eru sem stendur örgustu nieiu- vættir þessa lands. jleitarmönnunum fjölgar. Kaíli úr ræðu sóra Haralds Níelssonar við minnÍDgarathöfuiua í dómkirkjunui 10. jan. 1909. Yndislegt er að sjá mennina leita að hinu týnda og frefsa það.

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.