Nýtt kirkjublað - 01.02.1909, Blaðsíða 5

Nýtt kirkjublað - 01.02.1909, Blaðsíða 5
NÝTT KŒKJUBLAÐ 29 En guðs mildi hvildi yfir litlu drengjunum og mömmu þeirra Þeir höfðu flækst langa leið frá bænum. Að lokum höfðu þeir farið að gráta, er aldiint var orðið, ogaðlikindum hjúfr- að sig hvor inn í annan og sofnað upp úr grátinum. Svo sváfu þeir á berri jörðinni um nóttina. En með morgunsárinu kom sólin blessuð og fanu þá og var búin að blýja þeim, er bóndi einn þar í sveitinni, sem var á ferð, kom að þeim snemma um morguninn. Þegar hann sá leitarfólkið í fjarska, skildi hann þegar, hvernig í öllu lá, og hrópaði til þess: „Það, sern þið leitið að, er fundið.“ Og svo hefir mér verið sagt frá, að eftir á hafi alla furð- að mest á þvi, að þau orð heyrði presturinn og sneri heim; og þó var hann langar leiðir frá hinu Ieitarfólkinu og sá ekkert til þess; og mönnum fanst óhugsanlegt, að hljóðið hefði getað borist svo langa leið En ráðning þessarar gátu er sjálfsagl sú, að svona næmt var eyra prestsins orðið, af því að honum hafði hitnað svo óumræðilega um hjartaræturnar, og af þvi að hann langaði svo innilega til að finna og frelsa og stöðva harminn. Öll sál hans hefir hlustað af öllum mætti, hlustað eftir einhverju hljóði frá týndu drengjunum. Vinir nu'nir! Er það ekki satt: er ekki yndislegt að sjá mennina leita að hinu týnda og frelsa það? Þá er guðdómsneistinn vaknaður í brjósti þeirra. Þá eru þeir farnir að feta í fótspor mannsins sonar. Þá finna þeir til þess að þeir eru allir bræður og eiga að bera byrðar hver annars. En hversu erfiðlega hefir mörgum enn gengið að skilja þennan sannleika. Hefir ekki mörg móðirin mist eldri drengina sina frá sér fyrir áhrif áfengis siðvenjunnar, og það jafnvel meðan hún var ónnum kafin yfir yngri börnunum? Margir synir liafa vilzt að heiman fyrir drykkjusiði mannan na. Víða hafa mennirnir svo að segja í túnum sínum búið til áfengisbrunna og brenm'virslirki. Og mæðurnar liafa grátið mikið yfir týndu sonunum sín-

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.