Nýtt kirkjublað - 01.02.1909, Blaðsíða 8

Nýtt kirkjublað - 01.02.1909, Blaðsíða 8
32 NÝTT KIRKJUBLAÐ [vað Fesus vildi. Matt. 13, 31—32. Þegar vér spyrjum hvert verið hafi takmark Jesú, hver tilgangur hans með starfi sínu, fyrir hvað hann hafi lifað og dáið, ])á getum vér að visu hugsað oss svarið með fleiru móti en einu. En það svarið, sem einna bezt fullnægir hygg ég vera þetta: Takmark Jesú var stofnun guðs ríkis á jörðu, tilgangur hans að gera jörðina að guðs riki. Þessi hugsjón gagntók alt líf hans. Fyrir hana lifði hann og fyrir hana dó hann. Mikilfenglegri hugsjón er ekki hægt að lifa fyrir. Hún ber ekki vott um neinn smávaxinn anda þessi hugsjón Jesú Mikilfengleg mundi hún þykja á vorum dögum, en margfalt mikilfenglegri þó á dögum hans, eins og þá var háttað í veröld- inni. Jörðin var alt annað en ríki guðs, þá er Jesús fæddist í heiminn. Það var öðru nær en að guð væri sá er mennirnir yfirleitt helgnðu líf sitt og þjónustu Það var öðru nær en að mennirnir græfust eftir guðs vilja til að haga eftir breytni sinni. Það var öðru nær en að rómverska ríkið hið mikta og volduga, væri ríki þar sem heilagur vilji guðs væri mannanna helgasta lögmál, — Það vita allir sem þekkja trúarlegt og siðferðilegt ásigkomulag ]>eirra tima. Eða þá Israel — hin litla og fátæka þjóð, sem taldi sig eignariýð guðs; ekki var þar heldur um neitt guðs ríki að ræða þar sem vilji guðs væri mannanna helgasta lögmál, — það var það i orði kveðnu, það var það á pappírnum, en það var það ekki i reyndinni — siður en svo. Engu að síður var Jesús staðráðinn í að gera jörðina að guðs ríki, að helga líf sitt alt þessu eina mikilfenglega verkefni að kenna mönnunum að leggja stund á réttlæti og heilagleik í allri breytni sinni, elska hver annan og hjálpa hver öðrurn í stað þess að ásælast hver annan og vinna hver öðrum mein. En hvað skal segja? Var þetta ekki að setja sér ofhátt takmark? Var þetta ekki að ætla sér að framkvæma ómögu-

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.