Nýtt kirkjublað - 01.02.1909, Qupperneq 9

Nýtt kirkjublað - 01.02.1909, Qupperneq 9
NÝTT KIRKJUBLAÐ 33 lega hluti? Jú — fyrir manna sjónum. Og árangurinn varð ekki heldur mikill — fyrir manna sjónum. Hver var hinn sýnilegi árangur starfs Jesú við dauða hans? Orfáir lærisveinar — nokkrir ómentaðir og umkomulausir alþýðu- menn — annað ekki! Og þessir menn áttu að halda áfram því starfi, sem hann varð að hverfa brott frá: að breyta jörðinni í guðs ríki, umskapa svo frá rótum líf maimaima og hugsunarhátt, að guðs heilagur vilji yrði þeirra æðsta og helgasta Iögmál. Hlaut ekki það að sýnast enn ómögulegri hlutur fyrir þá að framkvæma? Jú — fyrir manna sjónum var það enn ómögulegra, að þeir gætu náð þessu takmarki. En hugsjónamaðurinn mikli áleit það ekki neinn ómögu- legan hlut. Hann var lifandi sannfærður um að ]»að hefði alt góða vegu. Hjá honum komust engar efasemdir að. Hann trúði á sigur hins góða, af því að hann trúði á guð, trúði á hann heitar, öílugar og óbifanlegar en uokkur annar hefir nokkru sinni gert. — Þeim sem trúir — hugsaði hann — er alt mögulegt, því að guð getur alt. Guðs ríki skal koma, jörðin skal umskapast frá rótum, það sæði skal bera ávöxt, sem ég hefi sáð i akur mannfélagsins; jafnáreið- anlega og af mustarðskorninu sprettur upp mustarðstré, skal guðsnki spretta upp af því sæði, sem ég hefi sáð Jesús er ekki i neinum efa um árangurinn af starfi sinu, af því að hann þekti sæðið, sem hann hafði niðursáð, vissi hvers eðlis það var og hvílíkan vaxtarkraft það hafði í sér fólginn. Aldrei hefir nokkur niaður lifað á þessari jörð jafnsterk- trúaður á árangurinn af starfi sínu í heiminum sem Jesús. Hver sem þekkir lifssögu hans, gengur fljótt úr skugga um það Hann er ekki eitt augnablik í efa um, að starf hans, þótt það yrði ekki lengra en þetta, muni fá afarmikla þýð- ingu fyrir heiminn, muni áður en lýkur gjörbreyta öllum svip og útliti heimsins Hvílíkt bjartsýni! Hvaðan kom honum slíkt bjartsýni, ekki fegra en útlitið var fyrir manna sjónum, ekki bjartara en var uppi yfir? Trúin á mátt föðursins, sem sendi hann, trúin ein gat gert hann svo bjartsýnan mitt í heimi syndar og rangsleitni,

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.