Nýtt kirkjublað - 01.02.1909, Side 12
36 NÝTT KIRKJUBLAÐ
fram. Því að: „Guðs riki kemur ekki svo að þess gætt verði:‘,
og það Iiefir sín áhrif í hógværum og kyrlátum anda. En tím-
inn leiðir þau þess betur i ljós sem lengra líður. Og 2—3
aldir eru stuttur tími af þroskaskeiði mannkynsins. Því þarf
mikilsvarðandi sannleikur oft langan tíma til að hefja sig yfir
öll tvímæli En að því getur það j)ó stutt, beinlínis eða ó-
beiidínis, að hver sá, sem persónulega meiningu hefir, lát.i
liana í Ijó-i Þess vegna fmn ég mér skylt að láta í ljós
mína persónulegu meiningu um það efni, sem vinur minn,
dr. H. P., hefir vakið máls á
Og meining mín er sú, að framfarirnar í mannúð standi
í sambandi við framfarir í því, að leggja réttan skilning í
kristindóminn.
Eg verð, með fáeinum orðum, að skýra ])essa hugsun
mína betnr.
Mér hefir skilist svo, af fyrri alda guðsorði, sem ég liefi
lesið. að ])á hafi hver sá verið álitinn réttkristinn, sem trúði
þeim trúarsetningum, sem kirkjau hafði ákveðið, samkvæmt
sínum skilningi á vissum ritningarstöðum, og að sá maður
ætti vísa eilíf’a sælu, ef hann iðraðist synda sínna i lifanda
lífi og, svo að segja, gæfi guði ávísun uppá lausnargjald og
réttlæti Krists.
Og mér hefir skilist af sögunni, að menn hafi vanalega
tekið þessi atriði út úr kristindóminum á þann hátt, að með
því gátu þeir samþýtt hann eigingirni sinni. En eigingirnin
er i eðli sínu andstæðingur mannúðar og mannkærleika.
Það munu nú vera 2—300 ár síðan fullkomnari skilning-
ur á insta eðli kristindómsins fór að ryðja sér lil rúms og
brjóta af sér hlekkina, sem eigingirnin hafði lagt hann í.
Það er sá skilningur, að til þess að vera rétlkristinn þurfi
maðurinn að „láta sama lunderni vera í sér, sem var í Jesú
Kristi". En hann elskaði mennina meira en sitt eigið líf. Og
hann gaf öllum þeim, sem vilja vera hans lærisveinar, þetta
boðorð: „Elskið hvern annan eins og ég hefi elskað yður“.
Þessi kristindóms-skilningur hygg ég að einkum hafi
glætt mannúðar og mannkærleiks anda síðustu alda Og ég efa
ekki, að í þeim efnum verði enn meiri framfarir um ókomnar
aldir, samkvæmt hinu guðdómlega þroskunarlögmáli.
Br. J.