Nýtt kirkjublað - 01.02.1909, Síða 13

Nýtt kirkjublað - 01.02.1909, Síða 13
NÝTT KmK.nJBLAÐ _ Brautin helqa. 05-0 *J Stórtíðindum ]jykir ]iað sœta, að í sumar sem leið var fullger járnbrautin frá Damaskus til Medína. Þaðan má heita stutt suður til Mekka, og ])á skemst að bíða að báðar hinar helgu borgir Múhameðsmanna veröi komnar í brautarsamband við Sýrland og Litlu Asiu og Konstantínópel, eða sama sem í túnfótinn lijá kalífanum, páfa Múhameðsmanna. Þetta stórvirki, að leggja brautina óravegu um vatns- lausar eyðimerkur, fyrir austan Saltasjó, hefir Tyrkjasoldán Abdúl Hamíd II. unnið, þrátt fyrir fjárskort og óstjórn. Heil- um herfylkjum hefir verið skipað til vinnunnar, og kaupið afarlágt, og eigi siður með óskilum úti látið. Hún bej- sig svo sem ekki brautin sú. Þar er svo sem ekkert um að vera, nema pílagrímastraumarnir fram og aftur vissa tínia árs. Góður Múhameðsmaður á helzt ekki að fara svo í gröfina að eigi bafi hann áður sótt heim hinar helgu borgir. Þegar hann kemur heim úr þeirri för er hann orð- inn miklu meiri og betj'i maður í augum sjálfs sín og annara. Brautin er gerð fyrir pílagrimana. Áður urðu þeir að sæta verstu ókjörum af Bedúínum; það hét svo að þeir greiddu Badúínum þóknun fyrir fylgd, en var eigi annað en ránskapur. Mestu skiftir að soldán hefir nú þessar borgir alveg á sínu valdi, gelur á fárra daga fresti komið ])angað setuliði eftir þörfum „Rétttrúaðir“ einir hafa unnið að þessu og lagt alt féð til, og starfrækja brautina. Þeir bafa orðið langt á undan Þjóð verjum, sem i 9 ár liafa verið að eiga við Bagdað-braut- ina austur um hinar frjóu bygðir Trúaráhuginn hefir kom- ið meiru til leiðar en gróða-hugurinn. Auðvitað voru nokkrir yfirmenn frá Evrópu, en seiriustu 40 mílurnar til Medína voru Tyrkir alveg einir um það. Lundið var orðið ofheilagt, til þess að kristnir menn mættu vera þar að verki, og ekki mega þeir heldur koma nærri þessum 00 nn'lum sem eftir eru suður lil Mekka. Játvarður Englaudskonungur ræður yfir fleiri Múhameðs- trúarmönnum en Tyrkjasoldán. Englandi er skákað með þessari tyrknesku jarnbraut. Valdið yfir borgunum helgu veitir jafnframt áhrifavald á miljónir sálna „rétttrúaðra“.

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.