Nýtt kirkjublað - 15.07.1914, Blaðsíða 8

Nýtt kirkjublað - 15.07.1914, Blaðsíða 8
16B NÝTT KIRK.TUBLAÖ skyldunámsgreinir í skólunum væri ávextir þessarar nýmóðins guð- fræði, sem þeir þarna fyrir sunnan væru að reyna að innleiða.11 Biblíufélagsfundur var haldinn seinni synodusdaginn 27. f. m. Sjóður full 8 þús. kr. Minst á að nú væri ekki nema tvö ár til hundrað ára afmæl- is félagsins, og komið hefði til tals að koma út nýrri þýðingu á Apokrýfisku bókum ritningarinnar. Utanþjóðkirkjuforstöðumaður staðfestur sira Ólafur Stephensen 30. maí fyrir nýstotnaðan utanþjóð- kirkjusöfnuð í Próðárhreppi í Snæfellsnessýslu. Prestafundur Hólastiftis. JÞegar blaðið þetta er að hlaupa af stokkunum — 30. júni — hefir fundurinn staðið 2 daga. Við eru 16. Síra Björn í Mikla- bæ prédikaði við setninguna. Erindi hafa flutt sr. Þorsteinn Briem um kirkjuna og æskulýðinn, Geir vígslubiskup um kirkjuna og olnbogabörnin og sira Björn i Miklabæ um nýju guðfræðina. N. Kbl. flytur að vanda fróttir af fundinuin. Síra Hálfdán prófastur Guðjónsson var kvaddur af söfnuðum sinum raeð gjöfum og samsæti, Aðgjörð dómkirkjunnar stendur væntanlega yfir 3 máuuði. Embætta prestar hennar í frikirkjunni á meðan. Prédikun við þingsetning. Síra Sigurður Stefánsson í Vigur prédikaði að þessu sinni við setning alþingis og er það i 3. sinni að hann leysir það starf af hendi. Er það með öllu einsdæmi. Síra Magnús á Gilsbakka gjörði það tvisvar, annars hver greitt Torfalögin með þvi að fara einu sinni í stólinn við það tækifæri. Bjarmi, kristilegt heimilisblað. Kemur út tvisvar í mánuði. Verð 1 kr. 50 au., í Ameríku 75 cent. Ritstjóri Bjarni Jónsson kennari. Breiðablik mánaðarrit til stuðnings íslenskri menning. Ritstjóri sira Friðrik J. Bergmann, Winnipeg.— Verð 2 kr. hér á landi. —Fæst hjá Guðbirni Guðmundssyni prentara í ísafold. Sameiningin, mánaðarrit hins ev.lút. kirkjuf. Isl. í Vesturheimi Hvert númer 2 arkir. Verð hér á landi kr. 2,00. Fæst hjá kand. Sigurb. Á. Gíslasyni i Rvk. Ritstjóri: ÞÓRHALLUR BJARNARSON. ~ F élagspr enlsmiðj an.

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.