Nýtt kirkjublað - 15.04.1915, Qupperneq 5

Nýtt kirkjublað - 15.04.1915, Qupperneq 5
NÝTT KTRKJTTBLAB 93 var komin miðja vegu, niður i svonefnda Hvamma — en það er um klukkutíma gangur — man hún alt í einu eftir því, að hún hefir gleymt að taka til sykur í pelann rninn. En það sá hún að ekki tjáði að láta mig vera sykurlausan — eg myndi tryllast af óþekt og skælum og telpan sem átti að gæta min, myndi engu tauti koma við mig, ef eg fengi ekki sætt í pelann minn. Tók hún það þá til bragðs, að hún lét matinn frá sér þarna, þar sem hún stanzaði og hljóp heim aftur. Sykurinn var uppi á stofulofti og var það læst. Stiginn upp á loftið var framan við stofudyrnar í dimrnum gangi. Þegar hún kemur að stofudyrunum finnur hún megna reykjarlykt, og þykist vita að reykurinn muni vera í stofunni. Þrífur hún þá stofulykilinn uppúr vasa sínum í snatri, og opnar stofuna; og hún er þá kúffull af reyk. Þá man mamma alt í einu eftir því, að í flýtinum, sem á henni var, þegar hún var að fara af stað með matinn, hefir hún gleymt logandi kertisskar- inu á borðinu. Var kertið brunnið upp til agna; frá skarinu hafði síðan kviknað i borðinu, og var það mjög brunnið þeg- ar mamma kom að. Telur hún vist, að bærinn hefði brunnið til ösku, hefði hún ekki alt í einu munað eftir mér og sykr- inum. Mátti víst litlum tíma muna, að ekki væri kviknað í gólfinu. — Eg fekk sykurinn og fólkið matinn — þó seint yrði þenna daginn. Þessar sögur hefir nióðir mín sagt mér, og er það næg sönnun þess, að þær séu áreiðanlegar. Guðmundur Davíðsson. Eorðurreið fjfkagfirðinga. Æfisaga Gísla Konráðssonar segir nokkuð af heirnsókn Skag- firðinga til Gríms amtmanns á Möðruvöllum vorið 1849. Munu þeir ðem lesið hafa líka vilja heyra söguna sagða innan frá amt- iDanns garði. Eg var fyrir skemstu í heimsókn hjá frú Þóru Melsteð. Hang- ír þar á vegg mynd af Friðriksgáfu, vék eg að þvi að skíðgarð- urinn fyrir framan húsið hefði verið farinn, er eg var kunnugur þar i tíð Kristjáns amtmanus. Yöktust þá upp fornar minningar hjá frúnni, og sagði bún svo frá;

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.