Nýtt kirkjublað - 01.05.1915, Blaðsíða 8

Nýtt kirkjublað - 01.05.1915, Blaðsíða 8
104 NÝTT KIRKJUBLAÐ fgumarósk. Úr kveðjuorðum skólastjóra síra Magnúsar Helgasonar til kennara á síðasta vetrardag. Eg er ekki að vantreysta ykkur; fjarri ])ví. Egheíigóða von um að þið reynist vel. En eg finn til ábyrgðar skólans, sem hefir átt að veita ykkur undirbúning undir ])að sem við tekur. Eg veit að við böfum allir kennararnir haft vilja til að veita ykkur ])að, sem mœtti koma bezt að haldi á œfi- leiðinni. Og eg veit, hvað eg gœfi ykkur öllum saman, ef eg gæti, helzt af öllu í farareyri og veganesti, þegar ])ið leggið héðan út í óvissuna. Eg gæíi ykkur trú, einlæga, sterka trú, á föð- urinn, sem aldrei breytist né bregst. Þið vitið að eg meina ekki með trú neina varajátning svo og svo niargra Iærdóms- greina, heldur lífsskoðun, sannfæringu, ])á, að þið eigið guð að föður, í gleði og í sorg í lífi og dauða, að það er gæfan eina að nálgast hann, ógæfan eina að firrast hann, — sann- færing sem er ekki einungis huggun í sorgum, heldur og styrk- ur í stríði og önnum, æfinleg vörn og viðvörun við illu og röngu, sífeld hvöt til framsóknar í góðu; Ijós sem gjörir bjart i huganum, yfir lífinu og yfir dauðanum, Ifmœlisvísur. Integér vitae. Himinsól skini hlýtt á þína vegi, húmskuggar víki, grandi þeir þér eigi. Framtíð þín verði bjartur, blíður, fagur, brosmildur dagur. Vit þú, að þinni lífsferð gefur gætur guð, sem að bjarta sólu skína lætur; gæfan er þess, er gengur hans á vegi. — Gleymdu því eigi! A. V.

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.