Nýtt kirkjublað - 15.05.1915, Side 8

Nýtt kirkjublað - 15.05.1915, Side 8
120 NÝTT KIRKJUBLAf) frá Norðurlöndum, til að sœkja háskóla í Vesturheimi, og eins amerískum stúdentum af norrænu kyni til háskólavistar á Norðurlöndum. Sex voru þeir háskólaárið 1914—’ 15, sem nutu hins síðarnefnda og í þessum mánuði verða aðrir 6 eða fleiri nefndir til. íslahd sést hvergi nefnt í auglýsingum stofnunarinnar, og þurfum vér á oss að minna og koma því inn hjá stjórnend- um, sem rétt er og satt, að hvergi mun í heimi kostur á jafn- góðum Edduskýringum og við háskóla íslands. Munu styrk- þegar að vestan sumir hverjir fást við norræn fræði, og ættu þeir hingað helzt að sækja. Hér í Reykjavík þyrfti að vera fulltrúi ritsins (advisory editor), og væri vel, gæti ritið fengið einhverja útbreiðslu hér, þó þvi að eins, að þessi stofnun vilji við oss kannast sem sérstætt og sjálfstætt land, og hafa bein skifti við oss. Þetta er sama stofnunin, og hinn virðulegi vinur vor, Lorentzen prófessor frá New-York, var hér með fyrir 2 árum. Var sagt af heimsókn hans í 16. blaði 1913, en þar ekki greint sem réttast um sjóðinn. Gerðist Björn prófessor Olsen þá félagi stofnunarinnar, og var honum gefið undir fótinn með, að hann mundi geta, við tækifæri, komið á framfæri stúdentum héðan til háskólanáms vestra (scholarship). En svo rak dr. Björn sig á, að umsóknin þurfti að ganga um hendur nefndar í Danmörku, og þá eigi við það eigandi, og sjálfgefið að enginn Islendingur sætir því boði, og þurfa þeir vestra, sem vilja oss vel, það að vita og skilja. Væri það ekki sérstaklega verk Háskólans og Stúdenta- félagsins, að koma að þeim skilningi. Heimurinn viðurkennir okkur ekkf íjórðu þjóð Norður- landa, minnum við ekki dálítið á okkur sjálfir. Athugasemd við greinina um síra Pál Sigurðsson. Bezti heimildarmaður reit mér samanburðiun á Hjaltabakka og Melstað (bls. 116—117). Athugaði eg í Prestatali, í'yrst er fu.ll- sett var, að sr. Guðraundur Vigfússon, prestur að Borg og Melstað, sat aldrei Hjaltabakka. Eini maðurinn sem þetta gat hafa sagt, var Halldór próíastur Ámundason, dáinn 1843. Hann var nokkur ár á Hjaltabakka, áður en hann fekk Melstað. Setti eg þá inn nafn hans, þótt eigi viti betur, en prýðisvel hafi hann komist af á Melstað. _____________Ritstjóri: ÞÓRHALLUR BJARNARSON. F élagspren tsmiðj a n.

x

Nýtt kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.