Nýtt kirkjublað - 15.10.1915, Qupperneq 1
NÝTT KIRKJTTBLAÐ
HÁLFSMÁNAÐARRIT
FYRIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING
1915
Reykjavík, 15. október
20. blað
Jungamiðja trúar vorrar.
Getur Kristur verið hugsandi nútíðarmönnum leiðtogi til
eilífs lifs og sáluhjálpar? Er Kristur enn sá virkileiki, er
geti haft áhrif á líf þeirra manna, sem alist hafa uppi í and-
rúmslofti vorra tíma og mótast andlega af mentun þeirra?
Svo spyrja margir, og þeir eru ekki fáir sem álíta, að þeirri
spurningu beri að svara neitandi.
Tvent er sérstaklega sem veldur því, að Kristur verður
nútíðarmönnum ekki sá virkileiki, er hefir áhrif á líf þeirra.
Annað er sú skoðun, sem kirkjan hefir um aldaraðir fylgt
fram, að Kristur sé einhver óskynjanleg tvivera, guð og mað-
ur í senn. Ilitt er sú býsna almenna ímyndun, að Kristur
hafi í lifsskoðun sinni og kenningu verið heimsflótta- og mein-
lætamaður, og því verði öll eftirbreytni eftir honum ógerning-
ingur fyrir hvern þann, er arm fegurð og lífsgleði, þekkingu
og mentun.
Hvorugt þetta fær samrýmst lýsingu guðspjallanna á
Jesú. Yrði mönnum það fyllilega ljóst og gerðu menn sér
far um að kynnast rækilega þeirri mynd af Jesú, sem í guð-
spjöllunum blasir við oss, geri eg ráð fyrir, að þessum mönn-
um mundi brátt skiljast, hvilíkt tilefni til alvarlegrar sjálfs-
prófunar það er, að nerna staðar frammi fyrir mannsins syni,
hvílík uppörfun, hvílík blessun, hvílík huggun er i því fólgin,
að virða hann fyrir sér þar og elska hann.
Kristur er þungamiðja kristnu trúarinnar, það getur ekki
orkað tvímælis. En svo sem þungamiðja kristnu trúarinnar
verður hann vitanlega einnig þungamiðjan i lifi hvers þess
manns, sem í einlægni játar kristna trú.