Nýtt kirkjublað - 15.10.1915, Blaðsíða 7

Nýtt kirkjublað - 15.10.1915, Blaðsíða 7
_ JSITT ™JÚBLAÐ 2j9 Hún rekur sig þá fyrst á þetta, „live víða maður sér eld- gamla garða á beztu stöðum, sem lagðir bafa verið niður fyrir mörgum tugum ára, og bendir á afturíör“. Hvað þetta minnir mig á, er faðir minn var að sýná mér í kaupstaðarreið alla niðurlögðu matjurtagarðana inn frá Laufási. Minnir að hann segði mér að um miðja 19. öld hefði komið sá fjörkippur í garðræktina, og kulnað svo út. Segi þeir um það er betur vita. Alstaðar þurfti hún, konan f Skagafirði, að „sýna handtökin11, en tilfinnanlegastur skortur handverkfæra, sem flestir ætla sér úr að bæta fyrir næsta ár. Hún ritar svo um árangurinn: „Það var annars ánægjulegra en eg geti greint með orð- um, hve vel þessum leiðbeiningum var tekið, og hve feykilega húsmæðurnar og unglingarnir urðu fegin, að fá svona sérstaka til- sögn í þessu. Unglingar og börn virðast sem upplögð til að sinna svona löguðu“. „Þarna var aðal-áherzlan Iögð á rófnarækt og kartöflur. Þar sem tök voru á, var komið upp blómgörðum, en trjáplöntur höfð- um við ekki“. Tilfinnanlegastur þótti henni þekkingarskorturinn á því að fara með verkfæri. — — Hressingin var einkum þessi, að heyra það, hvað unga fólkið tók þessu vel. Hrollur og kvíði tíðum, að þetta uppvaxandi skóla- fólk vilji einmitt ekki snerta á verki. — Eg var nýskeð að lesa enska dýrtíðarprédikun — að spara og spara. Man eg þar ekki annað úr en það, að einhver, sem stór- rlkur var orðinn á mustarðsgjörð, var spurður hvernig hann gæti grætt á þeirri vöru, sem jatnlítið væri neytt. Kvaðst hann eigi hafa grætt á þvi er etið væri, heldur hinu, sem eftir yrði á diskinum. Ánægjulegra hitt óneitanlega, að aukið vit og strit verði til bjargar. Og sandjörðin hérna við sjóinn, f kring um Faxaflóa, æpir á hvorttveggja hjá oss. Fæddir, fermdir, giftir, dánir 1914: Fæddir sveinar 1230 (1182), fæddar meyjar 1159(1122), sam- tals 2389 (2304). Af þeirri tölu audvana íædd 56 (88). Óskilget- in börn 333 (295). Eermdir 896 sveinar, 887 meyjar, samtals 1783 (1707). Hjónabönd 493 (494). Hánir alls 1485 (1144), 776 karlmenn, 709 kvenmenn. Voveiflega hafa dáið 98 (86), aí þeim

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.