Nýtt kirkjublað - 01.04.1916, Síða 2

Nýtt kirkjublað - 01.04.1916, Síða 2
74 NÝTT KIRKJUBLAÍ) hafði þá lagt fyrir Jesúm spurninguna: Eg særi þig við hinn lifanda guð, að þú segir oss það, ef þú ert Kristur, sonur guðs? Og Jesús hafði þá svarað spurningunni játandi. Svo eiginlega hefðu fjandmenn Jesú mátt láta sér nægja þá játn- ingu. En svo gífurlegt hneyksli fanst þeim játning þessi, að það er þvi líkast sem þeir hafi beint ekki trúað sínum eigin eyrum. Þegar þeir því byrja yfirheyrsluna aftur, í dögun morguninn eftir, og Jesús hefir verið færður inn í ráðstofuna. þar sem æðstu prestarnir, hinir skriftlærðu og alt ráðið var samankomið, þá verður það þeirra fyrsta verk að vekja aftur máls á þessu, hvort hann sé Kristur, hvort hann sé guðs-son- urinn. Og þegar svo Jesús hefir endurtekið játningu sína frá kveldinu áður með þessum orðum: „Þér segið satt, því að eg er það“, þá þarf ekki að yfirheyra lengur. Fjandmenn Jesú þurfa nú ekki framar vitna við, þeir hafa sjálfir heyrt af munni hans, það sem þeir óskuðu að fá vottfest. Því slíta þeir fundinum, til þess að selja Jesúm í hendur lands- höfðingjanum, sem einn hafði að lögum vald til að dæma Jesúm. Fyrir þessa sömu játningu sína hefir Jesús á öllum öld- um verið dæmdur af mótstöðumönnum sínum. Þeir kunna að hafa kannast við það, að margt hafi Jesús sagt, er beri vott um vísdóm, og margt hafi Jesús gert, sem beri vott um mannelskufult hjarta. En þá hafi hann vissulega farið lengra en góðu hófi gegndi, er hann sagðist vera Kristur og guðs sonur. En það eru fleiri en mótstöðumenn Jesú, sem hafa átt erfitt með þessa játningu hans frammi fyrir æðstu prestunum og ráðinu. Einnig mörgum, sem vildu ekkert fremurenvera vinir Jesú og lærisveinar, hefir hún búið erfiðleika. Eg geri meira að segja óhikað ráð fyrir, að þeir séu langsamlega fæstir hér inni á þessari stundu, sem ekki hafa einhverntíma orðið að glíma við þessa spurningu: Var hann Kristur, son- ur guðs? Og einmitt þess vegna hefi eg dregið þessa alvar- legu spurningu fram hér í kveld, að mig langaði til að mega rétta einhverjum lítilsháttar hjálparhönd, sem kynni að eiga erfitt með hana, svo afar-þýðingarmikif sem hún er fyrir a.lla lærisveins-afstöðu vora til hans.

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.