Nýtt kirkjublað - 01.04.1916, Blaðsíða 3

Nýtt kirkjublað - 01.04.1916, Blaðsíða 3
NÝTT KIRKJUBLAÐ '75 „Ertu Kristur?“ „Ertu þá guðs-sonurinn ?“ Svo spurðu óvinir Jesú forðum, og svo er enn í dag spurt af mörgum, bæði óvinum og vinum. Eg verð hér fyrst af öllu að vekja athygli yðar á því, að á vörum Gyðinga var þetta tvent „Kristur“ og „guðsson- urinn“ ekki tvent hvað öðru óskylt, heldur eitt og liið sama. í því efni tekur einmilt texti vor af öil tvímæli. Spurning- in síðari: „Ertu þá guðs-sonurinn?“ er ekki ný spurning heldur endurtekning spurningarinnar á undan: „Ertu Kristur?" aðeins með öðrum orðum. Eg hefi þráfaldlega rekið mig á, að alment er mönnum þetta ekki fyllilega Ijóst. Fjöldi manna heyrir ekki fyr talað um Jesúm sem guðs son, en hugurinn hverfur allur að því, að Jesús hafi verið sonur guðs í sömu merkingu og á sama hátt og þú ert sonur eða dóttir þíns jarðneska föður. En þetta höfðu Gyðingarnir alls ekki í huga er þeir spurðu: „Ertu Kristur? Ertu þá guðs-sonurinn ?“ Og þegar Jesús svarar spurningu þeirra játandi, þá er hann ekki heldur að gefa neinar upplýsingar um faðerni silt í þess- ari merkingu, heldur er svar hans nákvæmlega í sama anda sem spurning þeirra. Þegar þeir spyrja: „Ertu Kristur — ertu þá guðs-sonurinn?“ þá spyrja þeir hann: hvort hann sé sá erindreki guðs, sem fyrirheitin hljóða um og spámennirnir höfðu spáð um, að guð mundi smyrja, „til að flytja fátækum gleðilegan boðskap, boða bandingjum lausn og blindum að þeir skuli aftur fá sýn, til að láta þjáða lausa, til að kunn- gjöra hið þóknanlega ár drottins“. Og þegar Jesús geldur spurningu þeirra jákvæði sitt, þá gerir hann ómótmælanlega tilkall til að vera þessi drotlins smurði, það og ekkert annað. En einmitt það, að þetla er inntak játningarinnar, sem Jesús gerði með dóm og dauða fyrir augum, gefur henni þá meg- inþýðingu fyrir lærisveinsafstöðu vora til hans, sem játning hans hefði ekki haft, ef merking hennar hefði verið hitt, sem eg nefndi, og margir leggja í orðin. Til þess að gera yður þetta ljóst, vil eg minna yður á hvað Jesús sagði um tilgang komu sinnar í heiminn. Hann lýsir honum með þessum alkunnu orðum: „Mannssonurinn er kominn til að leita hins týnda og frelsa það“. Hann er kom- inn í heiminn til að vekja mennina af dauðasvefni syndalífs- ins, svo að þeir taki sinnaskiftum, hverfi aftur til föðursins,

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.