Nýtt kirkjublað - 01.04.1916, Side 4
76
NÝTT KIR'KJUBLAÐ
gangi honum á hönd í lifandi trausti til náðar hans, í heilögu,
guði helguðu liferni. I þessum tilgangi kallar hann oss til
lærisveins-sambands við sig. „Og kennið þeim að halda alt sem
eg hefi boðið yður“ segir hann að skilnaði við þá ellefu á
fjallinu. En til þess nú að Jesús geti gjört þá kröfu til vor,
að vér höldum alt, sem hann hefir boðið, og til þess að hann
í ofanálag geti heimtað það jafn skilyrðislaust og hann gerði
það, — og allar kröfur Jesú til lærisveina sinna eru einkenni-
lega skilyrðislausar, — þá verður hann að hafa valdið til þess
að ofan, frá guði sjálfum. Að öðrum kosti geta orð hans
ekki verið bindandi fyrir mig eða fyrir þig, fremur en orð
hvers annars manns, sem til vor talar, eða gjörir lil vor
kröfur sínar. En hafi Jesúr talað af guðlegu valdi, hafi hann
talað sem erindreki guðs, þá talar líka guð sjálfur fyrir munn
hans og mitt og þitt verður að hlýða og gerast sekir við
guð ella.
Nú vitum vér allir, að Jesús hejir játað sig vera slíkan
erindreka guðs. Hann gerði það einmitt með því að játa
spurningunni: Ertu Kristur — ertu guðs-sonurinn? Að mínu
viti er ekkert i veröldinni jafn ótvírætt og það, að Jesús hefir
játað það sjálfur, og staðfest það með eiði, að hann væri
Kristur, sonur guðs, og hefði verið búinn guðlegu valdi og
guðlegu umboði til að kalla menn til afturhvarfs og lifernis-
betrunar, til þess með því að frelsa oss frá yfirvofandi dauða
og glötun. Og meira að segja: Jesús hefir ekki aðeinsjátað
þessu og staðfest það með eiði, hann hefir einnig lagt lífið i
sölurnar fyrir þessa játningu sína. Alt það sem fram við
hann kemur á píslarferli hans, alt sem þú sér hann líða frá
því augnabliki, er hann gekk yfir lækinn Kedron inn i gras-
garðinn, þangað til hann hneigði höfuð sitt í dauðanum á
krossinum, var að réttu lagi atleiðing þess, að hann játaði
sig vera Krist, guðs soninn, þ. e. drotlins smurða.
Og nú vil eg spyrja þig, kristinn bróðir eða systir, sem
enn kant að eiga erfitt með þessa þýðingarmiklu spurningu
óvina Jesú, og ert áhyggjufullur þess vegna, afþví að þú hefir
hugboð um, hve mikilvæg hún er: Finst þér það líklegt, að
Jesú hafi skjállast í þessum framburði sínum. Finst þér það
trúlegt, að Jesús hafi blekt sjálfan sig til að játa slíku, og