Nýtt kirkjublað - 01.04.1916, Qupperneq 5

Nýtt kirkjublað - 01.04.1916, Qupperneq 5
NÝTT KIRKJUBLAÐ 77 meira að segja farið svo langt í sjálfsblekkingunni sem það óneitanlega væri, að leggja lífið i sölurnar fyrir einhvern liug- arburð eða einhverja draumóra? Eg get ekki gert ráð fyrir neinni sál hér inni, er þessu vilji svara játandi. En það er sitt hvað að neita því að Jesús hafi talað sem draumóramaður, er hann játaði sig vera Krist, guðs son, og hitt að trúa á hann sem Krist, guðs son. Og það er þetta síðartalda, sem eg sagði, að veitti svo erfitt, mörgum manni, sem þó þráir ekkert heitara en að trúa á hann, með því hans æðsta óskamið er að vera lærisveinn Jesú, en hann veit, að til þess útheimtist trú fyrst og fremst. Eg vil þá strax taka það fram sem sannfæring rnína, að einmitt þeir menn, sem svo er farið, að þeir þrá innilega að trúa á Jesúm seni Krist, guðs son, að einmitt þeir trúi á hann, að einmitt þeir séu úr flokki hans sönnu lærisveina. En hvernig get eg litið svo á? Þessi þrá þeirra er mér tal- andi vottur þess, að guðs andi er farinn að vinna sitt góða verk í hjörtum þeirra, að þeir eru þegar farnir að elska hann, farnir að halda boðorð hans. Að þeir þrátt fyrir þetta álíta sig ekki orðna trúaða, orsakast af því að þeir misskilja trúar- kröfuna. Eg hefi áður margsinnis bent á þetta bæði hér og annarstaðar, en það er sannleikur, sem ekki verður of oft endurtekinn, hæði vegna þeirra, sem sjálfir telja sig trúaða, en eru það alls ekki, og vegna hinna (og það ekki síður), sem álíta sig ekki trúaða, en eru það í raun og veru, þótt þeir viti ekki af því. Því hvað er það að trúa á Jesúm sem Krist, guðs son? Eg skal fyrst segja yður hvað það er ekki. Það er ekki það að taka gilt alt það sem góðir og velmeinandi lærisveinar hafa kent eða sagt um uppruna Jesú, um eðli hans, um afstöðu hans til föðursins eða um afstöðu hans til hjálpræðis vors. Eg neita því engan veginn, að mikið af þessu kunni að vera bæði satt og rétt og viturlega talað. En það er engan veg- inn sjálfsagt, að vér trúum á Jesúm sem Krist, guðs son, þótt vér tökum það alt sem góða og gilda vöru. Þeir hafa verið til á öllum tímum, sem vegna þess að þeir voru svo gerðir, að geta samsint öllu þessu, álitu sjálfa sig vera hina sönnu trúmenn, en litu með meðaumkvun — er hezt lét — og stundum með kulda og fyrirlitningu til annara, sem svo

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.