Nýtt kirkjublað - 01.04.1916, Qupperneq 6

Nýtt kirkjublað - 01.04.1916, Qupperneq 6
78 NÝTT KHtKJUBLAÐ voru gerðir, að geta ekki fylgt þeim í þessu. En þeir voru ekki alt af sannir trúmenn, sannir lœrisveinar Jesú. Þvi að þá vantaði einatt það, sem er sjálft hjarta, sjálfur insti kjarni trúarinnar. Hvað er það þá að trúa á Jesúm sem Krist, guðs son? Það er alt annað og miklu meira en þetta sem eg nú nefndi. Sönn og sáluhjálpleg trú er ekki þekkingarmál fyrst og fremst, heldur hjarta-afstaða. Að trúa á Jesúm sem Krist, guðs son, það er að „élsha hann sökum velgerninga hans“ hefir Lúter sagt. Þetta er sú eina trú, sem nokkuð gagn er í. Þér getur veitt ervitt að samsinna ýrnsu því, sem góðir menn og guðhræddir hafa um hann skrifað og skrafað, en ef þú elskar hann, þá hefir þú trúna, þú ert orðinn læri- sveinn hans: Þetta er engin ný kenning. Þetta er hin gamla kristna trú, sem var i upphafi, er enn og mun verða til enda veraldar. Þetta er það sem Jesús leggur megin-áherzluna á. Það er býsna eftirtektavert, að þegar Jesús upprisinn opin- berast lærisveininum, sem þrisvar i röð hatði afneitað honum, þá sagði hann ekki við hann, svo eðilegt sem það hefði mátt virðast: Símon Jónasson, trúir þú á mig? Heldur sagði hann, eins og vér munum öll: „Símon Jónasson, elskar þú mig?u Jesús snýr sér þar beint að þvi, sem i hans augum er hjarta og insti kjarni trúarinnar, og um leið rót og grund- völlur hins rétta lærisveins-sambands. Því að hvað er að elska Jesúm ? Einnig það þurfum vér að álita. Að elska Jesúm er ekki sama sem að bera hlýjan hug til hans eins og vér berum hlýjan hug til einhvers vinar vors í fjarlægð, t. a. m. norður i landi eða vestur í Ameríku, sem vér getum ekki minzt, án þess að hlýjar til- finningar fari um oss allan. Jesús hefir sjálfur sagt í hverju elskan til hans væri fólgin: „Ef þér elskið mig, þá haldið þér mín boðorð.“ Þess vegna sagði hann líka við lærisveina sína á fjallinu að skilnaði: „Og kennið þeim að halda alt, sem eg hefi boðið yður“. Það, sem eg þá vil biðja yður, kristnu vinir, að festa yður vel i minrii, er þetta: Að trúa á Jesúm, sem Krist, guðs son, er að elska hann, og að elska Jesúm er að halda alt, sem hann hefir boðið svo sem af guði talað fyrir hans munn. Að elska Jesúm sem Krist, guðs son, er að lifa Jesú, að helga honum líf vort, hugsanir vorur, orð vor, athafnir vorar, helga

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.